Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 6

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 6
eitt komum við seint heim og fundum þrjá slíka heimaalninga liggja á svæflunum okkar með lak breitt yfir sig. Þarna sváfu þeir svefni hinna réttlátu með leifar af sveskjum og kex- mylsnu allt í kringum sig . Þvottabirnir eru þau dýrin, sem við höfum oftast neyðst til að setja inn í búr það, sem aetlað er órólegum egstum. Þeir dagar hafa komið, sem við höfum þannig orðið að hafa þá í stöðugu „gæsluvarðhaldi". Þetta átti sér einkum stað þann tíma sem við höfðum Muf hjá okkur, en það var einstaklega „fram- leiðslu“-gott þefdýr! Þvottabimirnir stríddu Muf þangað til hann lyfti skottinu til að þruma — en um leið ónýttu birnirnir þá fyr- irætlun hans með því að ~ slá á skottið. Þá sáum við, að best var að loka þá inni. Okkur hefur tekist að temja flesta þá fugla og þau spendýr, sem við höfum haft hjá okkur. Önnur dýr umgöngumst við þannig, að við reynum að hagnýta okkur hið villta eðli þeirra. Sem dæmi má nefna hreysikött nokkurn, sem elti John klukkutímum saman í von um að geta bitið hann. Ef John gat hlaupið nógu hratt, gat hann fengið hreysi- köttinn hvert á land sem hann vildi. Þegar hjólreiðamaður nokkur sá þá á hlaupunum eitt kvöldið, hrópaði hann glaðlega: „Þetta er þó sá mannelskasti hreysiköttur, sem ég hef nokkurn tíma séð. Hann eltir yður beinlínis eins og hundur!“ Ýmsir þessara gesta okkar hafa fundið upp á furðulegustu hlutum sér til afþreyingar og ánægju. Ugla nokkur beið þess þolinmóð tímunum saman að einhver setti plötu á grammófóninn; þá gat hún fengið sér sann- kallaðan snúning á plötunni. Okkur hefur aldrei skilist til fulls, hverskonar ugluskap hún komst í við þetta, en hún bjó hjá okk- ur í heilt ár og virtist aldrei þreytast á þess- ari innanhúss-tómstundaiðkun — og án þess að fá hinn minnsta svima! Svo var það einn fugl, sem við höfðum að- eins skamma stund — hrafngammur. Við slepptum honum sökum þess, að við óttuð- umst, að við myndum missa nokkra vini okk- ar í kunningjahópi mannfólksins ella. Fólkið staðhæfði nefnilega, að þessi savrti fugl kaeffli því í hið versta skap með því að sitja úti við opnar dyrnar og hvessa á þau augun. Ekki er hægt að búa með ótömdum dýf' um án þess að komast nokkuð að raun um það, hvað innra með þeim býr. Eitthvað þa® athyglisverðasta er það, á hvern hátt unglinS' arnir skiljast frá foreldrunum fyrir fullt °S allt. Einn góðan veðurdag í október laumað' ist refurinn út um gerðið eins og seiddur af óviðráðanlegri þrá — og við vitum, að hann kemur aldrei aftur. Uglan vappar yfir graS' flötina, sest upp í trjátopp ,snýr hausnum h* allra átta og mænir í átt til sjóndeiIdarhringS' ins. Síðan þenur hún vængina hin rólegasta °S flýgur í áttina að settu marki — og við vit- um að hún kemur ekki meir. Þegar við lítum á þetta með mannlegum augum, komumst við ekki hjá því að verða dálítið döpur þegar þetta gerist. Aldrei munu þessi dýr heimækja fyrri heimkynni sín. E11 jafnframt er okkur ljóst, að brottför þeirra er aðeins upphaf annars nýrra — að nýir ungaf munu koma í heiminn, þegar aftur fer a^ vora. 6 HEIMILISBL AÐlp

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.