Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Side 9

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Side 9
>.Mér þykir svo fyrir því, að þetta hefur gerst“. ..Litla kjánastelpa“, sagði hann, „en hvað Það er líkt yður að taka það nærri yður — aimarra vegna.“ Rödd hans var nokkuð ó- skýr. Vertu nú stillt, Jane! hvíslaði hún að sjálfri Ser- Vertu nú róleg! En það var ekki auðvelt fyrir hana að vera róleg, þegar Júlíus lagði ^önd sína á hennar hönd og sagði, að hún yröi að verða hress aftur eins fljótt og hún „Það er ekki starfið, sem ég er að hugsa Utri“> sagði Iiann. „Það er yðar sjálfrar vegna sem ég segi þetta, skiljið þér, Jane. . .“ En hann lauk ekki við setninguna. >.Nei, en veslings Jane þó!“ hljómaði skær rödd 0g nokkuð andstutt við fótagaflinn, Segnum lága rödd Júlíusar. Við gaflinn stóð Drusilla. Hún hélt á falleg- Uttt blómvendi í hendinni, og dökk augu henn- ar ijómuðu af meðaumkun. Nún gekk að rúmstokknum og settist. Svo ^lrtist sem hún tæki ekki hið minnsta eftir ullusi. Allt ver þetta mjög raunverulegt, ryllilega raunverulegt. Jane var það ljóst, °S henni varð þungt um hjartað. ’.Mömmu hður ekki beinlínis vel“, sagði rusilla, „svo ég fór hingað í staðin fyrir Ua- Hún hringdi ekki til mín fyrr en í dag, atlnars væri ég búin að koma fyrir löngu“. Síðan hlaut Jane að kynna þau: „Þetta er rusilla frænka mín. Drusilla, þetta er herra JuIíus Wang“. bað Var harla ónotalegt fyrir Jane að heyra u kasta á hana kveðju og ganga svo sam- an út úr sjúkrastofunni þegar heimsóknin var euda. Þegar þau voru komin að dyrunum, !ar Það Drusilla, en ekki Júlíus, sem mundi hr\ ,. að snúa sér við og kinka kolli til sjúk- Ungsins. Erusilia hafði þekkt fjölmarga menn um ^a.gana. Hún hafði orðið ástfangin og sett upp , *nS. en yfirunnið tilfinningasemina og sent r*nginn aftur rétta boðleið — og þetta hafði ^ st svo mörgum sinnum, að Jane gat ekki fastað tölu á það lengur. Henni hafði aðeins U(Jist, að Drusilla hlyti að vera tilfinninga- laus. En þegar hún sá augu hennar mæta augnaráði Júlíusar, — þá var eins og Jane sæi nýja Drusillu. 1 fyrsta skipti sá Jane ást, heita og kröfuharða ást, loga úr augum henn- ar. Eða var þetta bara ímyndun? Það tók Jane miklu lengri tíma að komast aftur til heilsunnar en læknamir höfðu bú- ist við. „Hvað amar eiginlega að yður?“ spurði hjúkrunarkonan einn daginn. „Yður ætti að fara fram með hverjum deginum sem líður. Það gengur ekkert að yður líkamlega, upp- skurðurinn tókst ljómandi vel, og sárið er gróið. Er það eitthvað sem yður leiðist?“ „Nei“, svaraði Jane. Hún hafði heldur enga ástæðu til að láta sér leiðast. En henni var nú ljóst, að Drusilla átti sér mót við Júlíus annars staðar en við sjúkrabeð hennar. Drusilla hafði sagt henni einn daginn, að hann hefði boðið sér út að borða. Aldrei hafði hann boðið Jane þannig út. Hann vitjaði Jane á hverjum degi, en Drus- illa var þá alltaf viðstödd, og augnaráð henn- ar elti uppi augnaráð hans allan tímann. Sú stund rann upp, að Jane óskaði þess jafnvel að verða ekki heil heilsu aftur. Hún óskaði þess að fá að deyja, án þess að kom- ast nánar að raun um vináttu Júlíusar og Drusillu — og væntanlegt hjónaband þeirra. Júlíus tjáði henni, að ágætlega gengi með bókina, „eftir að hann hafði hitt Drusillu gædda holdi og blóði“. Þetta sagði hann svo að Drusilla sjálf heyrði, og Jane varð að gefa henni skýringu á því, hvernig þau hefðu í sameiningu gert hana að söguhetju í væntan- legri bók. Drusilla, sem jafnan var mjög elskuleg í garð Jane, var engu að síður sú sem öll at- hyglin beindist að — eins og alltaf. Eftir tvo mánuði ætlaði hún að taka þátt í veðreið- um, og um þetta fjallaði hún fram og aftur, en Júlíus og Jane hlustuðu á. En þrátt fyrir allar óskir, náði Jane heilsu sinni á ný, og sá dagur rann upp, að hún skyldi yfirgefa sjúkrahúsið, sem virtist ekki geta hýst hana lengur, — og hverfa aftur út í það líf, sem sömuleiðis virtist ekki hafa ^MILISBLAÐIÐ 9

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.