Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Qupperneq 12

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Qupperneq 12
Trúlofuð - án þess að vifa það SMÁSAGA EETIR MARCELL BENOIT De Stances barónsfrú var andartak alein með ungfrú Simone — Simone Vérard, sem var aðal-afgreiðslustúlkan í hinu stóra tísku- húsi Bocher Soeurs — og hún notaði líka tækifærið. „Innilegustu hamingjuóskir mínar, ungfrú!“ sagði hún fyrirvaralaust. Simone leit undrandi á hinn virðulega við- skiptavin sinn: „Hamingjuóskir? ... I hvaða tilefni segir barónsfrúin þetta?“ ,j tilefni af væntanlegum hjúskap, að sjálf- sögðu“. „Hjúskap?" „Yðar eigin. Frammi fyrir mér þurfið þér ekkert að leyna því“. ,Að . . . að ég sé í þann veg að gifta mig! Það hlýtur að vera um einhverja aðra að ræða — eða einhver hefur sagt barnfóstrunni ósatt“. Ungfrúin brosti, og barónsfrúin leit á hana sem grallaralaus um stund, en sagði svo með nokkrum undirtóni: „Þér eruð sannarlega ein- um of hlædræg, ungfrú. Þér ættuð þó að vita, að ég hleyp ekki um með slúðursögur. Fram- tíð yðar . . . “ „Framtíð mín? Hefur einhver verið að tala um hana? Kannski „sá væntanlegi sjálfur?“ ,jíei, hann þekki ég ekki persónulega, en við eigum sameiginlega kunningja. Og hann dregur ekki dul á neitt.“ „Einmitt. Því ætti hann svosem að gera það . . .“ Simone var orðin gröm, og var næstum búin að gleyma því, að hún var að tala við viðskiptavin. „En ég get sagt yður það í trúnaði, að hér er aðeins um söguburð að ræða . . . afsakið, ég á við, að hér er um að ræða misskilning, samanrugling á nöfn- um. Ég er ekki sú eina sem ber þetta for- nafn og eftimafn. Það hlýtur að vera einhver önnur Simone Vérard, sem er trúlofuð. Það er allt og sumt“. .jlei, ekki getur það verið; því að það er ekki aðeins nafnið, sem kemur heim og sam- an, heldur aðrar upplýsingar sem mér hafa borist um yður. Vel getur verið, að til seU fleiri með nafninu Simone Vérard, en að ÞV1 er ég best veit er aðeins ein fædd í Angoul' éme, dóttir verksmiðjueiganda þar á staðnuffl- Ég er reyndar sjálf fædd í því héraði, og eS þekki vel til fjölskyldunnar. Jæja . . . Viður- kennið þér núna, að þér getið ekki borið a móti þessu? . . . Ég hefi fengið það góðar upplýsingar. Þér getið alveg eins viðurkennt sannleikann. Ég held líka, að þér verðið hm glæsilegasta frú de Rodena“. „De Rodena?“ „Já, bankastjórans úr Baulevard Hauss- mann. Hann bæði cr eitthvað og á; og aU^ þess er hann hið eigulegasta mannsefni á all' an annan hátt“. Smám saman var Simone orðin mjög al' varleg. „Þetta er þó það ótrúlegasta af öllu! Það er þó sannleikur, að ég hef ekki einu sinu1 séð herra Rodena, og ég get ekki ímyndað mér, að hann hafi fengið þá flugu í höfuðið að vilja giftast mér — án þess að þekkja mig hið minnsta“, sagði Simone og var nu farin að brosa. „Allavega hefði hann ae> minnsta kosti getað spurt mig, áður en haffl1 fór að tilkynna væntanlegt brúðkaup okkar • „Það segiö þér þó satt“, svaraði baróness- an hugsi, „en hvað á öll þessi saga að þýða' Hver getur fundið upp á því að nota nafn'ð yðar? Og í hvaða tilgangi? Ef ég væri í yðar sporum, myndi ég gaumgæfa málið nánar • „Ja, sjáið þér til: Það er ekki um núg a^ ræða, eða hvað?“ „Hvort sem svo er eða ekki, þá fyndist fflef rangt af yður að láta sem ekkert væri“. Barónsfrúin kvaddi og fór, og eftir stó Simone hugsi. Þegar ein afgreiðslustúlka0 gekk inn skömmu síðar, spurði hún hana- H E I M I L I S B L A Ð I P 12

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.