Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Side 19

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Side 19
..Viljið þér giftast?" sagði Múlattinn blátt áfram. Pað kom hik á dr. Walter. Honum fannst toaðurinn hvað eftir annað vera að vekja hjá sér undrun. Hann svaraði þó eftir stund- arkorn: »Nei, alls eigi“, og svo fór hann að hlægja, því þá vaknaði hjá honum endurminning um Ijóshærða frænku, fremur ófríða, sem móðir ^ans oftar en einu sinni hafði viljað láta hann l°fast, en hafði þó að þessu komist undan því. pað var þetta tilræði gömlu konunnar við frjálsræði hans, sem meðfram hafði valdið því, að hann dreif sig í þennan leiðangur vestur Uln haf, og sem fram að þessu hafði orðið þ°num til ánægju og aflað honum mikils ^óðleiks og væntanlegrar frægðar. »Pér eruð ungur maður og þér þurfið að fa yður konu“, hélt Múlattinn áfram. „En ef vill eruð þér þegar giftur?“ ..Heldur eigi“, sagði Walter. „Vísindin hafa þ*ngað til átt ást mína óskerta, og engin jarð- nesk kona mun vinna hana frá þeim. Ég vona Þer skiljið mig“, sagði hann hlæjandi, því hon- UtTl fór að þykja þetta umræðuefni fremur skrítið. Pessi hlátur hefir ef til vill sært Múlattan, því hann sagði mjög alvörugefinn.. „Lífskjör v°r verða oft að sníðast eftir vilja annarra, svo þeirra eigin vilji lýtur í lægra haldi“. »Já, að vísu“, svaraði Walter. . . „En þó á þ£tta sér ekki stað í giftingamálum, að minnsta k°sti eigi í mínu landi. 1 þeim efnum hafa ^estir fullt frelsi, sem þeir láta eigi af sér taka“. »Petta fer eftir kringumstæðum. Hugsan- eSt er, að svo geti farið, að þér eigið ekki anr|ars úrkosta en að giftast þeirri stúlku, er aðrir hafa valið handa yður“. »Eg mundi aldrei gera það“. >.En ef líf yðar væri í veði, ef þér neituðuð ráðahagnum?“ Hanianið fór nú að draga af doktornum V|ð þessar viðræður, og hann svaraði því al- Vörngefinn: >.Lífið er flestum dýrmætt, því menn hafa k| nema eitt að missa, og því er það, að ^ E I M I L I S B L A Ð I Ð ríkin hafa sett þennan dýrgrip undir vernd laganna". Múlattinn blístraði fyrirlitlega. En doktor- inn stóð upp, honum geðjaðist ekki að þessu umræðuefni, því honum virtist skoðun Múlatt- ans bera vott um fyrirlitningu fyrir lögum og helgum mannréttindum, svo hann vildi eigi eyða við hann fleiri orðum, og sneri á leið til veitingahússins. Múlattinn veik sér í veg fyrir hann og sagði með skipandi röddu: „Bíðið við, þér skuluð gera það, sem ég vil vera láta, hvort sem yður er það ljúft eða leitt. Ég hefi eigi tilgangslaust eytt mörgum dögum og hafa úti njósnara til þess að ginna yður hingað. Neyðið mig eigi til þess að beita þeim meðulum, sem gera alla mótspymu yð- ar árangurslausa. Stúlkan, sem ég hefi ákveðið að þér giftist, hefir alla þá kosti til að bera, sem maður í yðar stöðu getur óskað sér“. „En ég vil hana ekki!“ hrópaði doktorinn, því nú fór að síga í hann fyrir alvöru. „Hún er íjómandi falleg“. „það má hún fyrir mér“. „Hún er vellauðug“. Walter svaraði engu, en reyndi að komast heim að húsinu, en Múlattinn fylgdi honum eftir og sagði: „pér viljið losna við mig, en þér hafið ekk- ert undanfæri og eruð alveg á mínu valdi. Viljið þér svo giftast stúlkunni eða ekki?“ „Ég hefi þegar sagt yður það — nei“, hróp- aði Walter því óttaslegnari, sem honum fannst hann vera að missa vald yfir þolinmæði sinni. En hinn áleitni Múlatti var stöðugt jafn kald- ur og rólegur. „Jæja, svo tek ég yður fastan“, sagði Múl- attinn um leið og hann læsti um handlegg hans ómjúku taki. Hinn ungi grasafræðingur hafði sjaldan lent í slarki og erjum ólutvandra veraldarmanna, en lengst af haft allan hugann á friðsamlegri vísindastarfsemi; var hann því mesti geðspekt- armaður og seinn til að skipta skapi. En þessi ofsalega áreitni, sem kom honum á óvart, hleypti á svipstundu í hann feiknabræði. Hann tók snöggt viðbragð og reif sig lausan, 19

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.