Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 22

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 22
Alllanga leið halda svertingjarnir áfram með þessa byrði sína, og var skógurinn sumstaðar þéttur og rifu greinarnar stundum fangann í andlitið. Loks sá hann bjarma bera fyrir aug- un, og sá að komið var fram á skóglausa sléttu, þar sem að eldar brunnu í kringum tjöld nokkur, og var slæðingur af mönnum kringum eldana. Þegar nær dró, sá hann að þetta voru allt svertingjar og Múlattar. Þegar sást frá tjöldunum til sveitarinnar er flutti fangann, varð þar allt í uppnámi. Þessi óþjóðalýður kom æpandi og hlaupandi til að slást í förina með þeim er komu með fang- ann; heyrðust þar hin ámátlegustu læti. Hundagelt, barnagrátur, kvennaóp blandaðist saman við fagnaðarlæti svertingjanna. Þegar kom heim undir eitt tjaldið, heyrði Walter hrópað með röddu, sem hann kann- aðist við. „Hafið þið hann?“ „Já, herra“, var svarað, og í sömu svipan var fanganum varpað til jarðar hjá stóru báli, svo nálægt að hitinn var þegar óþolandi, og hann reyndi að velta sér fjær. Tryllingslegur hlátur heyrðist kringum hann og hann sá nokkra dökka fætur á lofti, auðsjáanlega í því skyni að sparka honum nær bálinu. En þá heyrði fanginn aftur þessa lágu, skerandi rödd, sem hann hafði áður heyrt, og þá stóðu allir hreyfingarlausir. Hann leit upp og sá þá hinn risavaxna Melazzo standa yfir sér og stara á sig þessum grimmu, köldu augum. „Petró“, hrópaði Múlattinn, og ungur Indí- ánakynblendingur, sem virtist hafa haft for- ustu fyrir aðförinni að Þjóðverjanum, gekk fram. „Þetta er njósnarinn“, mælti hann, „sem snuðrar í kringum felustað okkar, og er eng- anveginn trúandi. Við hittum hann í kvöld, þegar hann var að raða niður töfragrösum sín- um. Látið hann fá verðskuldaða hegningu". Múlattinn hneigði sig og augu hans hvíldu stöðugt á fanganum. „Já, það er hann“, sagði hann með ánægju- legum róm, „það er hann, sem ætlaði að framselja ekki aðeins mig, heldur og ykkur alla saman, í snörur hvítu vargana. Hvað a að gera við hann?“ Blökkumennirnir stóðu undrandi umhverfis höfðingja sinn; fæstir þeirra höfðu heyrt talað um þennan hættulega mann. Svo heyrðist muldur mann frá manni, sem gaf í skyn, að sjálfsagt væri að hengja þrjótinn þar á trja- greinunum, eins og alla óvini þeirra, sem þc1^ gætu handsamað. Múlattinn hneigði sig aftur, það brá fyrir fyrirlitningarglotti á koparlituðu andliti hans. Svo sagði hann hátt og skýrt: „Gott og vel, hann verðskuldar dauðann. En við verðum að taka tillit til kringumstæðn- anna. Norðurríkjunum, verndurum svertingj- anna, höfum vér heitið fylgi voru, og Grant hershöfðingi, borgar höfðinglega hverjar þ®r fréttir, er vér getum fært honum frá óvinun- um. Þessi maður kann að vita ýmislegt sem er áríðandi fyrir hershöfðingjann að komast að, og því verður að hafa upp úr honum allt, sem hann veit og okkur má að gagni koma. Af' hendið mér hann, því ég mun hafa lag á að fá hann til að segja allt, sem hann veit“. Sumir virtust í fyrstu ekki alls kostar ánægð- ir með að fresta líflátinu, en eftir litla stund var það samþykkt í einu hljóði, enda var auð- séð, að Múlattinn hafði eigi búist við öðru, því hann skipaði nokkrum svertingjum að fara með bandingjann á öruggan stað. Við hina sagði hann, að tími væri kominn til að setjast að kvöldverði. Kvaðst hann hafa látið opna tunnu af rommi handa þeim og vonaði að fólkið hressti sig á því. Fólkið fagnaði þessum tíðindum. Tveir svertingjar tóku Þjóðverjann aftur á axlir ser og báru hann inn í lítið bjálkahús þar í nánd og lokuðu hann þar inni og sneru svo aftur ttf félaga sinna. Þarna í einverunni hafði Þjóðverjinn gott næði til þess að hugsa um hagi sína, þótl hann væri illa staddur og böndin særðu hann- Hann ímyndaði sér, að Múlattinn mundj eigi ætla að láta lífláta sig. En ef til vill bindi hann lífgjöfina því skilyrði, sem hann hafð> áður heyrt, og ekki gátu verið annað e0 HEIMILISBLAÐlP 22

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.