Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 25

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 25
aUt hans skyldulið, nema eina stúlku, stúlk- Una, sem þér eigið að giftast, og þá nótt om- aði ég mér við eldinn af hinu brennandi húsi hans. Þessa stúlku, sem ég gaf líf, fundu menn mínir niðri í kjallaranum, var hún þá í öngviti í fanginu á Múlattakonu. Mér leist vel a stúlkuna og ég gaf henni líf; hún náði þeg- ar einhverju valdi yfir mér, því miður. Mér riatt í hug að taka mér hana fyrir konu, en Vlð það var ekki komandi, en eigi að síður hefi eg eigi fullan styrk gagnvart henni, og ég fæ arig ekki til að sálga henni; því verður hún að fara austur yfir hafið og setjast að í Evr- °PU. I þessari heimsálfu fær hún ekki að vera. lJér eruð eini maðurinn hér um slóðir, sem Setur flutt hana austur, og þér verðið að gift- ast henni, þá fer hún, ekki hingað vestur til riefnda. ».í*etta þrælastríð er úti þegar minnst varir, °g þá kemst allt réttarfar í fastari skorð- Ur» og þá má enginn vera hér, sem vinnur 8egn mér út af morðbrennunni hjá föðurbróð- Ur mínum“. »»Gott og vel, ég skal taka "túlkuna af yður a^eð mér til Evrópu og koma henni þar fyrir góðu fólki, þar til hún giftist eða getur séð fyrir sér sjálf“. Múlattinn hristi höfuðið. „Nei, ég verð að hafa tryggingu fyrir, að ungmey þessi verði ^aér aldrei til armæðu, ég á að baki mér fleiri s°rgir en hún. Ég hefi enga tryggingu fyrir að hún eiri fyrir austan og komi eigi hingað aftijr um hæl, en ef að þér giftist henni, er ^rin bundin og sama sem dauð fyrir mig, því 11 Un hleypur eigi frá manni sínum, og ég hefi ^'nar hugmyndir um, að henni muni þykja v$nt um yður, er fram líða stundir, og eigi niun yður fýsa hingað vestur aftur, það veit eg- Ákveðið yður því í snatri, stúlkan verður að fara. Hún fylgir yður þá inn í eilífðina, ef e|gi er annars kostur. Hugsið um, að það er e|gi aðeins yðar líf, heldur og hennar, sem þér e*gið að frelsa. ^jóðverjinn vissi ekki lengur hvað hann átti að segja, og ráðþrota hrópaði hann upp yfir „Sjáið þér ekki, að það er voðalegt að giftast á þennan hátt?“ „Svo þér viljið heldur vera hengdur, eða ef til vill viljið þér heldur að ég fái yður í hendur mönnum mínum; það eru Indíánar meðal þeirra og þeir kunna tökin á að lífláta mann á þann hátt, að þeir hafi sem mesta ánægju af því.“ „Nei, nei“, hrópaði doktorinn því nær ör- vita af tilhugsuninni um það, ef Indíánarnir yrðu látnir kvelja úr honum lífið. „Svo þér samþykkið þá giftinguna?“ Flestum verður það að grípa til hverskonar örþrifaráða, séu eigi önnur fyrir hendi, til þess að forðá lífi sínu, þegar hvalafullur dauði steðjar að, og svo fór fyrir þessum unga vís- indamanni, sem þó fyrir stundarkorni hafði verið einráðinn í að láta heldur lífið, en ganga að þessum viðbjóðslega ráðahag. En þegar að herti, bilaði þrekið, og hann fór að hugsa um, að mögulegt kynni að verða fyrir sig að losast við þessa kvensnift von bráðar, þótt hann yrði nú neyddur til að giftast henni. Hann hafði engar siðferðisskyldur gagnvart henni þegar stofnað væri til hjónabands á þennan ofbeldishátt. Svo fór hann að vona, að eitthvað kynni að koma fyrir á síðustu stundu, sem kynni að hindra það, að hjónabandið kæmist á. Hann fór og að finna til þess, að það mundi vera skylda sín við móður sína og vini og heimili að varðveita líf sitt, ef auðið væri. Hann reyndi þó enn að malda í móinn og sagði: „Hvemig get ég gift mig, skilríkjalaus maður?“ „Ég hefi leyfisbréf yðar, og það nægir, þeg- ar samþykki yðar er fengið“. „En lögin munu eigi viðurkenna slíka ólög- lega giftingu hér úti á víðavangi". „Vígslan fer fram eftir lögum Bandaríkj- anna og gildir um allan heim“. „En prestlaus vígsla er eigi gild“. „Prestslausir erum við ekki hérna, og sé allt löglegt, er engu að kvíða, og það mun ég sjá um. Hjónabandið verður í alla staði lögum ** E I M I L I S B L A Ð I Ð 25

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.