Hjálpræðisorð - 01.03.1893, Blaðsíða 8
24
sem syndir þínar kunna að vera; þótt þú hafir
lengi í þeim velkzt, þá hindra þær ekkort, því
kraptur, kærleiki og miskunnsemi Krists er langt-
nm meiri öllum heimsins syndurn.
Yeslings konan, sem kom til Jesú, hafði auð-
sjáanlega verið 'oersyndug, og í mörg ár lifað í
svívirðilegustu synd, og samt talaði Drottinn eigi
'hörðum eða móðgandi orðum til hennar; hann á-
vítaði hana ekki fyrir syndina; — »hann áleit ekki
’hennar synd«, (Esek. 33, 16.), og í stað þess að
verða burt rekin fyrir misgjörðir sínar, varð hún
íyrir náð og kærleika Drottins, sem fyrirgaf henni
allar hennar syndir, og bauð henni að ganga burt
í friði.
Ef þessi ritlingur kæmi í hendur konu ein-
hverri, sem væri eins voluð, eins djúpt fallin, þá
getur hún af þessu sjeð, að samt er engin ástæða
til að örvænta. Kristur er ætið hinn sami, fullur
náðar og sannleika, og »hann getur lílca œtíð frels-
að pá, þar hann œ lifir, til að tala þeirra málú.
(Hebr. 7, 25.).
’ Sjerhver syndari, sem leitar fyrirgefningar
synda sinna, í fullu trausti til Guðs náðar í Jesú
Kristi, fær fyrirgefningu. Drottinn er ætíð fús á
að fyrirgefa, nhann vill ekki að nolckur fyrirfarisU.
(2. Pjetr. 3, 9.).
TJtgefið af 0. V. Gíslasyni
imeð stuðningi i'rá The Beligious Tracts' Society, London,
Prentað í Isafoldarprentsiniðju.