Heimir - 01.12.1906, Blaðsíða 14

Heimir - 01.12.1906, Blaðsíða 14
182 H EI M I R lagöist svo flatur, seildist í fyrstu steinydduna, hélt þar dauða- haldi og skreiö svo áfram. Þannig dró hann sig áfram af einni steinyddu á a5ra, og marinn og meiddur og hálfdauöur af kulda koinst hann svo yfir hraunröndina. Skömmu síöar stóö hann svo á hæstu fjallröndinni, setti hönd fyrir augu og horföi ýrnist austur eöa vestur. Þá sá hann og fann aö ekki var til einskis barist, sá aö vonin haföi á réttu máli aö standa, en kvíöinn á röngu. Þrautirnar voru allar vfirbugaöar, eöa því sem næst. Fjöll voru aö vísu austurundan, en í samanburöi viö þau sein hann haföi verið aö klifra yfir, voru þaö bara lágir hálsar skógi vaxnir, en íðgrænar grundir í breiöum og fögrum dölum milli næöanna. Upp frá þessu hallaöi virkilega undan fæti. Og að lyktum laust fyrir sólsetur haföi hann náö takmarkinu, því tak- inarki, að líta meö eigin augum héraöiö mikla, sem hann svo oft hafði heyrt talaö um, en sem enginn vissi hvar var. Hann var kominn á heiðarbrúnina austustu, og ekki eftir nema lítill spölur niöur aflíöandi brekkur, þangaö til víöir vellir tóku viö, ineð angandi blómuin og silfurskærum lækjum. Sigurinn var fenginn. Hann var sæll í þeirri meövitund, aö hvorki hættur né þrautir höföu hamlaö honum frá aö líta þetta dýrölega land framundan. Þar settist hann niður og naut unaöar meöan hann hvíldist. Og þegar geislastafir kvöldsólarinnar voru aö hverfa á bak viö fjöllin í vestri, þá reis hann öruggur á fætur og gekk niður seinustu heiðarbrekkuna. Þaö var enn komið kvöíd og hálfrökkvað þegar göngumaö- urinn nam staöar viö útjaöar móðunnar, er áður hafði hann séö af heiöarbrúninni. Og þaö var virkileg móöa, og þétt, eins og gufukúfur gysi þar hátt í loft. Haföi hann ekki vit- aö hverju þaö sætti, en sá nú aö hún grúfði yfir fljóti miklu og strauinhægu, og svo breiöu, aö hvergi glóröi í bakkana hinsvegar gegnum móðuna. Mannmargt var á fljótsbakkanum og bátar margir voru þar af ýmsri stærö og meö ýmsu lagi. Voru þetta ferjumenn ineð báta sína. Surnir bátarnir stóöu hálfir uppi á bakkanum, en suinir voru aö fara frá landi, fermdir farþegjum. Og nú fyrst tók göngumaðurinn eftir því, aö fjöldi fólks streyindi á

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.