Heimir - 01.04.1909, Síða 3
H E 1 M I R
219
unni, en þar sem aö einstaklingstilvera hins sjálfsmeSvitandi
manns, gagnvart heiminum, er eins afmörkuS og hún er, er
injög ólíklegt að maðurinn hati í byrjun gengið út lrá sjálfum
sér, sem miðdepli þess heims, er hann lifði í.
Upphaflega, og sjálfsagt lengi niður eftir öldum, átti engin
skifting. sér stað, hvorki í þekkingu né lífsskoðunum. Trúar-
brögð, heinrspeki, vísindi og siðferðishugsjónir voru ekki sundur
greind vegna þess, að þörfin á að greina þau sundur var ekki fyrir
hendi. Maöurinn leitaði að vitsmunalegri útskýringu á þeitn
hlutum, sem voru innan takmarka reynslu hans, þessar útskýr-
ingar náðu smámsaman útyfir hans eigin tilveru og heimsheild-
ina, eins og hann þekkti hana, þær voru hans trú, og lífsreglur
sínar setti liann í samband við þær, enda þó að þær hefðu
myndast sjálfrátt af kringumstæðum þeim, sem hann haföi lifað
undir. Þráin að finna tilgang og þýðingu í samhengi hlutanna
og rás viðburðanna gerði hverja skoðun þeim viðvíkjandi að trú,
sem gaf lífinu einhverja ákveðna þýðingu. Þess vegna voru
hinar elztu lífsskoðanir sambland af mörgu, sem síðar aðskilst
og verður hvað öðru andstætt, undir kringumstæðum, sem auk-
in þekking hefir í för með sér.
Þetta elzta stig lífsskoðana mannsins má skoða sem jarðveg,
er tvær liinar ólíkustu tilhneigingar alls andlegs lífs hafa vaxiö
upp úr. A aðra hönd er rannsóknin, sem er orsök þess, að
maðurinn gjörir sár nokkra grein fyrir eðli hlutanna, og á hina er
barnaleg trúgirnistilhneiging, sem gerir honum erfitt að sleppa
nokkru því, er hann hefir einu sinni lagt trúnað á. Rannsóknin,
sé hún ekki hindruð, leiðir vanlega af sér einhverjar nýjar álykt-
anir og tilgátur, sem verða að þekkingu, þegar þær fá almenna
viðurkenningu. En hún lætur ekki staðar numið, hún leitast
altaf við að auka við þekkinguna, sem frá hennar sjónarmiði er
ófullkomin. Af trúgirnistilhneigingunni aftur á móti leiðirþað,
að vissar hugmyndir eru viðurkendar að hafa eilífan og óum-
breytanlegan sannleik að geyma, við þær þarf engu að bæta, og
þar afleiðandi er rannsókn, að svo miklu leyti sem hún snertir
þær, ekki einungis óþörf heldur einnig röng. Á þessurn tveim-
ur tilhneigingum hvílir frjálslyndi og afturhald allra alda í