Heimir - 01.04.1909, Qupperneq 4

Heimir - 01.04.1909, Qupperneq 4
220 HEIMIR hvaöa málum sem er. Frjálslyndi og rannsókn eru óaöskiljan- leg; afturhaldiö aftur á móti er rannsókninni mótfalliö, vegna þess, aö sé einu sinni rannsakaö getur sannleiksgildi hinna viö- urkendu liugmynda veriö hætta búin. Samkvæmt þessum tveimur tilhneigingum eru tvær aðal- stefnur ráöandi í hugsunarhætti manna yfirleitt, og þessar tvær stefnur koma hvergi í sögunni betur í Ijós en í framþróun vís- indanna og í rétttrúnaöi kyrkjunnar. Vér þekkjum trúarbrögö ýmsra fornþjóöa í gegnutn goða- sagnir þeirra og önnur ritverk. Flest þessi trúarbrögð eru sam- bland af sannindum byggðum á lífsreynslu og hugmyndum um eitt og annaö, sem viö engan virkileik hafa aö styöjast. Trúar- brögö þessi hafa auðvitaö orðið til smám saman, þau hafa þrosk- ast í gegnum margar kynslóöir og bera á sér einkenni lífskjara þeirra, sem þessar kynslóðir hafa átt við að búa. Þær hug- myndir í þeim, sem frá voru sjónarmiði eru ekkeit annaö en ímyndun þekkingarlítilla manna, voru þeini, sem þær hugsuöu, sannleikur, og þar sem þær voru frá þeirra sjónarmiöi sann- leikur, voru þær náttúrlega viðteknar, þeim var trúaö. Saman við þær var svo lífsreynslan ofm, og það, sem í fyrstu var til aðeins í hugum einstakra manna, gat útbreiðst og oiðið almenn- íngs eign. Flest, ef ekki öll söguleg trúarbrögö, sein vér þekkj- um, hafa um einhvern tíma verið viöurkend trúarbrögö þjóða og ríkja. Orsakirnar til þess að þau hafa þannig verið viðurkend eru margar, en þó er sú sjálfsagt þýöingarmest, aö stjórnendur þjóða og ríkja hafa séð valdi sínu bezt borgið á þann hátt aö ljá þeim, sem flesta áhatigendur hafa haft,fylgi sitt. Meö tíman- utn hafaþausvo oröið fyrir fjöldanum eittaf því, semvani og hefð hefir gefiö óraskanlegt gildi, þau hafa verið skoöuð sem eitt af hinum óhjákvæmilegu stofnunum mannfélagsins, og aldurinn hefir veriö álitinn óyggjandi sönnun fyrir sannleiksgildi þeirra. Iín þrátt fyrir það hversu djúpar rætur lífsskoðanir þær, sem þessi gömlu trúarbrögð hafa inni aö halda, hafa fest í hugurn manna, hafa þó sömu íorlögin beöiö þeirra allra. Þekkingar þyrstar sálir hafa haldið áfram að rannsaka, við það lieíir þekk- ingin aukist, og að sama skapi hafa hinar viðteknu lífsskoðanir

x

Heimir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.