Framtíðin - 01.12.1909, Blaðsíða 17

Framtíðin - 01.12.1909, Blaðsíða 17
F R A M.T í Ð 1 N. hellinn þeirra, enda var enginn svo fífldjarfur a'ð reyna það. Það var komið kvöld. l)reng- irnir Jögðust endilangir niður í hey hrúgu, sem var í einu hlöðuhorn- inu. Þeir létu koddana undir höf- uðið á sér, svo breiddu þeir rekkju- voðina qg brekánið ofan á sig. “Éigum við að lesa bænirnar okkarF’ spurði Mangi í hálfum hljóðum. ‘ ‘ Nei, nej, það gerir enginn úti- legumaður,” svaraði Eggert. “Hvað lialdið þið liún mamma segi, ef við lesum ekki bænirnar okkar áður en við förum að sofa'?” sagði Matti. Nú vandaðist málið. Þeir vildu vera sannir útilegumenn, en þó vildu þeir ekki styggja mömmu sína. Loksins lásu þeir kveldbæn- irnar sínar, með hálfum huga þó, og fóru svo að sofa. Morguninn eftir, þegar útilegu mennirnir vöknuðu og fóru á stjá, var sólin komin upp og fuglarnir farnir að syngja. Þeim hafði sofn- ast vel í bælinu sínu. Það eina, sem skygði á gleði jæirra var það, að eldurinn var kulnaður í öskutrog- inu, svo að þeir gátu ekki hitað sér morgunkaffið. Matta datt nú f hug að skreppa út að stóra steininum fyrir utan tún- ið, og biðja huldufólkið um eld, en hann hætti samt við það, því liaun komst að raun um það, að huldu- fólkið var ekki bóngreiðugt. Einu sinni, þegar hann sat hjá lömbun- um með bræðrum sínum fyrir utan og neðan tiinið, þá var hann bæði kaldur og svangur. TTonum kom þá t.il hugar að leita á náðir huldu- fólksins. rak þá nefið inn um rifu á stór-um steini, og bað það í öllum bænum að gefn sér nú nð smakka 143 heitt hangikjöt. En huldufólkið tímdi ekki að gefa honum hangi- kjötið, það ansaði honum ekki einu sinni, svo Matti reiddist sem von var, og bað það aldrei líónar eftir þetta. Drengirnir lilupu nú út í góða veðrið, og fóru að leika sér. Þeir skreyttu treyjurnar sínar og húf- urnar með fíflum, sóleyjum og baldursbrám, því þeir voru hinir mestu skartmenn. Þeim þótti líka svo gaman að liorfa a fiðrildin, sem voru að fíjiiga í kring mn þá og «iúga lilómin. “Eigiun við aldrei að kojna lieim til pabba og ihöminu?” sþurði Mangi, og klóraði sér bak við eyr- áð. “Nei, nei, útilegu menn mega aldrei koma heim til sín,” svaraði Eggert. “Jeg vil koma Teim á jólunum,” sagði Matti. Hinir voru reyndar ekkert ; móti því að kom lieim á jólunum. Það var svo indælt að horfa á kertaljósin og borða jólamatinn. Mamma þeirra sagði þeim þá líka svo margt fallegt. Þeir mundu enn sumt af j)ví, sem hún hafði sagt þeim á síðustu jólunum. Hún sagði þeim, að nú væri fæðingarhátíð frelsarans. Hún sagði, að þeir ættu að elskas guð og menn, og vera góðir við dýrin. Hún sagði, að stjörnurnar og blómin bæru vitni um dýrð guðs og kærloik? hans. — Jú. — Þeir einsettu sér ai komn heim á jólunum, en fara svi auðvitað aftur út í holli sinn, jiegai jóltn væru liðin. * * * TTm náttmálabilið riðu hjónin í Skógum heim í lilaðið. Húsmóðir- in snaraði sér af bnln, og gekk inn

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/460

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.