Fríkirkjan - 01.03.1901, Page 8
40
„Gjörði hún það“, sagði Shelly og 1,ók aptur að lesa í
blaði sínu, sem liann virtist um st ind alveg niðursokkinn í;
en tók ekki eptir því, að hann hélt því öfugt fyrir sér, svo
að það vissi upp, sem niður átti að snúa.
„Eg sagði Elísu“, sagði frú Slielby, „að hún gjörði sér
heimskulegar áhyggjur, og að þú hefðir aldrei nein mök við
þess háttar menn. Eg vissi náttúrlega að þú hefui' aldrei
ætlað þér að selja neitt af fólki okkar, sízt siíkum kumpáni.1,
„Já, Emilía", sagði maður hennar, „þannig hef eg líka
alltaf hugsað og talað; en sanuleikurinn er, að eg má til að
seija eitthvað af fólki mínu.“
„Þessari skepnu? ómögulegt! Shelby, þér getur ekki verið
alvara. “
„Mér þykir fyrir að segja það, en mér er alvara", sagði
hann, ,.eg ætla að selja Tómas.“
„Hvað! hann Tómas okkar? sem er svo góður og trúr,
og hefur verið þjónn þinn frá því hann var drengur! Ó,
Shelby! og þar að auki hefurðu lofáð honum frelsi; við höf-
um bæði margsinnis taiað um það við hann. Jæja, nú get
eg trúað hverju sem vera skal. Nú get eg trúað því, að þú
gætir selt Harry litla, eina barnið hennar Eiísu aumingjans",
sagði frú Shelby og var í málrómnum bæði hryggð og grernja.
„Jæja, úr því þú verður að fá að vita það, þá er það
svo. Eg ætla að selja bæði Tómas og Harry, og eg veit ekki
hvers vegna eg á að reiknast sem óvættur fyrir það, þó eg
gjöri það sama sem hver maður gjörir á hverjum degi.“
„En því að velja þessa fremur en einhvern af hinum?“
sagði frú Shelby.
„Því að selja þá?
„Af því að eg fæ meira fyrir þá en nokkra af liinum -
það er orsökin. Hann bauð mér reyndar líka mikið fé fyrir
liana Elísu, en eg lilustaði ekki eitt augnablik á hann, af
umhugsun um tilfinningar þínar; þú verður að meta það
við mig.“
„Kæri Arthúr", sagði frúin, „fyrirgefðu mér, eg var of
fljót á mér. Þetta kom svo flatt upp á mig. En eg er viss
um að þú leyfir mér að taka málstað þessara vesalinga. Tóm-
as er göfuglyndur og tryggur, þó hann sé svartur; eg gæti