Jólakveðja frá K.F.U.M. - 24.12.1916, Síða 3
Jólakveðja frá K. F. U. M.
Jólaklukkurnar gjalla.
(Aðfangadagur jóla.)
Það er ætíð eitllivað hugfangandi að heyra
jólaklukkurnar hringja móti jólunum. Þa kem-
ur það fram í tilfinningunni að eitthvað sje
óvanalegt að gjörast.
Það er eins og hinn
andlegi heimur verði
allt í einu svo nálæg-
ur. Þá taka barnahjört-
un að titra af einhverj-
um ósjálfraðum fögn-
uði og eptirvæntingu.
Hljóðlega stígur jóla-
engiilinn niður og boð-
ar hinn sama hoðskap
eins og fyr á tíð. Hann
hoðar barnshjartanu
hinn mikla fögnuð,
sem veitast mun ölliim
lýðnum: »í dag er yður
frelsari fæddur«! — Og
öll barnsleg hjörtu fyll-
ast af endurómi þess-
ara orða, og þeim
sem trúa eru þau lika
virkileiki, unaðslegur
og áþreifanlegur. Fyrir
börnunum og hinum
trúuðu er ekkert virki-
legra en einmilt þetta
um fæðingu frelsarans.
Börnin grípa það í trú-
arinnar gleði, hinir trú-
uðu hafa reynt það,
því þeir hafa þegar far-
ið að eins og hirðarnir; þeir hafa farið til Bellc-
hem og fundið barnið, sem oss er fætt, soninn,
sem oss er gefmn. Þess vegna er jólagleði þeirra
svo virkileg.
Nú eru jólin aptur að renna upp og jólaklukk-
urnar hringja, og jólaboðskapurinn fluttur á ný
yfir byggð og ból. Og nú hljómar eilt orð oplar
en nokkurt annað orð, það, er orðið: »Gleðileg
jól!« — Og svo skulum vjer ekki láta það vera
aðeins góða ósk, heldur lika bæn, að gleðileg jól
mættu fyila hjörtu allra með friði og fögnuði.
Og svo skulum vjer þá lika keppa að þvi
að gjöra þá sem í kringum oss eru sannarlega
glaða.
Með þessu vill nú K. l'. U. M. senda jóla-
kveðju sina til allra
vina sinna. »Gleðilegjól!
Svo óskum vjer hörn-
unum, sem sunnudag
eptir sunnudag safn-
ast saman í húsi voru.
»Gleðileg jól!« það er
kveðja vor til allra for-
eldra barnanna og
heimila þeirra. »Gleði-
leg jól!« er blessunar
óslc til allra meðlima
vorra bæði í K. F. U.
M. og K. F. U. Iv.
»Gleðileg jól!« öllum
vorum vinum og vel-
unnurum! — Fjelagið
er að reyna til að lála
gleðileg' jól verða eign
hvers meðlims. Það er
starf vort á öllum árs-
ins lima. Þess vegna er
nokkuð af jólafögnuði
og jólagleði á öllum
samkomum vorum.
Aðalefnið á hverri
samkomu er þctta:
»Sjá jeg boða yður
mikinn fögnuð, sem
veitast mun öllum
lýðnum, því að yður
er í dag frelsari fæddur, sem er Droltinn Krist-
ur í borg Daviðs!
Þetta er »rauði þráðurinn«, sem gengur i
gegnum allt tjelagsstaríið, og selur blæ sinn á
allt fjelagslífið og skapar þessa ánægjufullu gleði,
sem einkennir samlif vort í ljelagslílinu.
»Gleðileg jól í Jesú nafni!« —
Fr. Friðriksson,