Ljós og sannleikur - 01.03.1919, Síða 5

Ljós og sannleikur - 01.03.1919, Síða 5
Ljós og sannleikur 5 stafur pílagrímsins, áttaviti hafnsögumannsins, sverö hermannsins, og sigurmerki hins sann- kristna manns. Þegar vér lesum hana þá blasir Paradís viö augum vorum og hliö himnanna opn- ast, en þar sjáum vér einnig, hvernig hliö vitis opnast upp á gátt, til aö gleypa þá, er hafna Guös náð. Kristur er aðalefni þessarar blessuöu bókar, heill vor áform hennar, og Guös dýrð takmark hennar. Hún á aö fylla minnið, drotna yfir hjart- anu og stjórna fótum vorum. Lestu hana vand- lega, hægt, iöulega og bænræknislega. Hún er gullnáma, dýrðar-paradís, unaöar.uppspretta. í þessu lxfi er hún gefin þér, verður opnuð á dóms- degi, og gleymist aldrei að eilífu. Hún leggur öllum á heröar þunga ábyrgö, lofar launum fyr- ir hvert gott verk, og hótar hegningu öllum þeim, er fara léttúðlega meö hennar heilaga efm. Ljósgeislar. Tveir ungir vinir gengu saman á sólbjörtum sumardegi og voru að tala urn trúmál „Hvernig er þitt trúarástand?" spuröi annar. „Mín trú er ekki margbrotin", svaraöi hinn. „Hún er innifalin í fjórum orðum, og þau eru þessi: Jesús dó fyrir mig“. Fimrn menn voru einhverju sinni að tala um þaö, hvaða meðal mundi vera áhrifamest, til að vekja menn af svefni syndanna og snúa huga þeirra til Guðs. „Áhrifamesta meðalið til þess álít eg að sé, að hugsa um dauðann og hverfulleik þessa lífs“, sagði sá fyrsti. „Nei, umhugsunin um dómsdag hlýtur að vera bezta meðalið, til að vekja menn og fá þá til að taka sinnaskiftum", sagði sá annar. „Að hugsa um sælu hinna útvöldu í himna- ríki hlýtur að vera bezta meðalið", sagði sá þriðji. „Nei, þá er áhrifameira, að hugsa um kvalir hinna fordæmdu, sem gráta og gnístra tönnum í yztu myrkrum", sagði sá fjórði. Þá tók sá firnti til máls og mælti: „Áhrifa- mesta meðalið til að vekja menn af dvala synd- arinnar og snúa huga þeirra til Guðs er, að minni skoðun, umhugsunin urn þá elsku, er knúði Jesúm Krist til þess að deyja á krossinum fyrir vor- ar syndir“. Og allir hinir féllust á hans skoöun. Dásamleg lækning. Kæru bræður í Kristi. Hér með sendi eg yður vitnisburð um það, hvernig Drottinn læknaði mig, er eg var að dauða kominn. Eg hafði frels- ast fyrir þrem árum i Auburn, Neb., og var skírður. Eg fékk taugaveiki í síðastl. júlimánuði, og mér fór síversnandi. Eg trúði því, að Drottinn hefði ekki mist mátt sinn til að lækna, sam- kværnt Guðs orði. Eg var svo veikur, að yfir- völdin tóku framkvæmdina í sinar hendur og læknir var sóttur. Loks misti eg alla meðvitund. Eg rnisti sjón og heyrn, og gat ekki komið nokkrum dropa inn fyrir mínar varir. Eg var með svo miklu óráði, að þrír menn urðu að halda mér í rúminu i heila viku. Eg lá i tíu vikur og varð svo magur, að beinin skröltu í skinninu, og fékk eg þá mörg legusár. Læknirinn sagði, að það væri engin lífsvon fyrir mig, og að eg gæti dáið á hverri stundu. Eg fór að syngja kl. 8 um kveldið, og söng eina klukkustund og lofaði Guð. Eg söng tvö kvöld og lofaði Guð stöðuvt, en þriðja kvöldiö féll eg i dvala og vissi ekki af mér í þrjár stundir. Loks voru þeir heilögu sóttir. Eg lokaði aldrei augunum þegar eg svaf. Smátt og smátt fór eg að kornast til meðvitundar, meðan þeir heilögu báðu Guð fyrir mér, og nú fór mér dagbatnandi, enda lofaði eg Guð fyrir það. Þegar veikin var á hæsta stigi sá eg sýn. Eg sá Jesúm koma til jarðar til að sækja sitt fólk. Eg sá hann koma gegnurn skýin. Eg sá hann standa á strætinu i miðri borginni. Hann beið ekki lengi. Þegar hann stóð þar, féll fólkið fram á ásjónur sínar, og allir, sem voru hans, fóru með honum upp i loftið. Mér var ekki leyft, að fara með Jesú, þar eö eg var of veikur til að rísa upp. Síðan sá eg aðra sýn, og Drottinn sagði mér að eg hefði ekki enn þá lokið starfi mínu hér á jörð.

x

Ljós og sannleikur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.