Ljósvakinn - 01.03.1925, Page 2

Ljósvakinn - 01.03.1925, Page 2
18 LJÓSVAKINN að hafði nýlega leiðst til afturhvarfs. Hann varð órólegur og kvíðafullur út af því, að samkoman myndi fara út um þúfur; en hann varð að gera skyldu sína og lofa henni að fá orðið. Svo settist hann niður, fól andlitið í þönd- um sjer og bað Guð um, að samkoman færi ekki út um þúfur. Síðan fór hann að hlusta og líta i kringum sig. Hann sá, að áheyrendurnir börðust við grátinn, loks gáfust þeir upp og gáfu tárunum lausan taum; þeir urðu allir fyrir djúp- um áhrifum. Eftir samkomuna koinu margir til þessarar lítilrnótlegu konu til að þakka henni fyrir þá blessun, sem ræða hennar heföi veitt þeim. Hún sagði frá því á eftir, að leyndardómurinn við þann kraft, sem fylgt hefði ræðu hennar, væri sá, að daginn áður hefði hún verið svo kvíðafull, vegna þess, að hún hefði aldrei talað opinberlega fyr. Svo hafði hún varið allri nóttinni til bænar. Væri það almennara, að þeir, sem flytja Guðs orð, verðu nóttum til bænar, myndu einnig áhrifin verða auðsærri! Eltir að hafa sótt bænasamkomur safnaðarins stöðuglega í mörg ár, var það eitt kvöld, að jeg gat ekki farið. Jeg ákvað þá, að í staðinn, skyldi jeg verja einni klukkustund til lesturs og bænar með konu minni og börnum, og síðan annari stundu til bænar í einrúmi. Jeg naut svo mikillar blessunar af þessu, að jeg ásetti mjer, að verja alt af einni stundu á sólarhring til bænar, og þetta gerði jeg annaðhvort að uóttu eða degi, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð. Af þessu fjekk jeg svo mikinn kraft, svo mikla uppörfun, svo djúpan skiln- ing á verðmæti bænarinnar, að slíks hafði jeg í þeim mæli, aldrei fyr orðið aðnjótandi. það var ein sál, sem jeg var lengi búinn að biðja fyrir, án sýnilegs árang- urs. Nú fanst mjer tími til kominn, að einhver úrslit yrðu. Jeg lokaði mig inni í herbergi mínu, og var einn með Guði í fjórar klukkustundir og bað, ýmist krjúpandi, sitjandi eða gangandi um gólf með opna Biblíuna í höndunum, bend- andi honum á fyrirheiti hans. Jafnframt því, sem jeg bað fyrir frelsun þessarar sálar, bað jeg Guð einnig um 500 kr., sem jeg þurfti á að halda í vissu augna- miði. Pessum fjórum stundum var vel varið, því eftir þrjár vikur hafði Guð veitt mjer hvorutveggja. Að sjálfsögðu er Drottins hús hínn rjetti staður fyrir hina trúuðu á hvíldar- dögunum. Þó getur komið fyrir, að vjer sjeum í því skapi, eða sjeum of þreyttir eða svo andlega mettir, að vjer getum ekki meðtekið blessun af prjedikun. Eitt sinn var því svo varið með mig, fór jeg þá út að njóta náttúrunnar, jeg gekk út í skóg, upp á hæðir og niður dali og var þannig fjórar klukkustundir að tala við Guð. Jeg gekk heim og fanst eins og jeg hefði verið á ummyndunarfjallinu, og blessunin, sem jeg naut þannig úti í náttúrunni aleinn með Guði, hvíldi yfir mjer í margar vikur á eftir. H. M. Lund. Er sálin ódauðleg? Hvað segir Heilög ritning um þetta? í aldingarðinum, Eden óx lífsins trje, ávextir þess höfðu þann eiginleika, að veita ævarandi líf. Ef Adam hefði staðið stöðugur í hlýðni sinni við Guð, hefði hann alt af haft frjálsan aðgang að þessu trje og myndi hafa lifað eilíflega.

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.