Ljósvakinn - 01.03.1925, Blaðsíða 5

Ljósvakinn - 01.03.1925, Blaðsíða 5
LJÓSVAKINN 21 »Pví að svo elskaði Guð keiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sern á hann trúir, glatist ckki, heldur hafi eilíft líf«, Jóh. 3,16. Kristur hefir opnað hinu fallna mannkyni aftur leiðina til lifsins — hins eilifa Iífs, og það er einungis gegnum hann, að sál vor getur hlotið ódauðleikann. Sjerhver mað- ur getur fengið hluldeild í þessari ómet- anlegu blessun, ef hann uppfyllir þau skilyrði, sem til þess útheimtast frá hans hálfu. Allir þeir, »sem með staðfestu í góðu verki leita vegsemdar og heiðurs og ó- dauðleíka«, munu fá eilíft líf. Ónærgætni. ---- Niðurl. »Hann hefir aldrei verið hraustur«, svaraði hún og stundi við, og svo hefi jeg orðið að láta hann vinna of mikið, jeg veit að hann hefir tekið alt of nærri sjer við að sækja vatn, lyfta þvottabal- anum og íleira. Hann hefir mikið lang- að til að gaDga í skóla, en jeg hefi ekki getað mist hann frá því að hjálpa mér fyr en í vetur. Hann ímyndaði sjer, að ef hann gæti læit dálilið, myndi hann geta sjeð fyrir Sissy, þeirri litlu og mjer. Jeg bælli fötin hans eins vel og jeg gat, og i vikunni sem leiö fór hann svo af stað. Jeg var hrædd um að drengirnir myndu hlæja að honum, en hann hjelt að hann myndi geta þolað það. Jeg stóð í dyrunum og horfði á eftir honum þegar hann fór. »Aldrei get jeg gleymt því hvernig þessi aumingi Ieit út«, bætti móðirin við með táiin í augunum — »bættu fölin hans, og kvíðafulla augna- tillitið. Um leið og hann fór, snjeri hann sjer við og sagði: »Vertu ekki hrædd, mamma, jeg skal láta mjer standa á sama um hvað drengirnir segja«. En honum stóð samt sem áður ekki á sama. Áður en klukkustund var liðin, kom hann aftur. Jeg hjelt að hjarta hans ætlaði að springa. Mitt hjarta sprakk fyrir mörg- um árum, en þennan dag sprakk það í annað sinn. Sjálf get jeg þolað miklar þjáningar, en jeg þoli ekki að sjá þá, sem jeg elska líða«. — Brjóst hennar bærðist af þungum ekka, og hún tók að gráta ákaft. Litla telpan gekk rólega til hennar, lagði mögru handleggina um háls henni: »Gráttu ekki, mamma«, sagði hún, »gráttu ekki«. Móðirin reyndi að stilla grátinn, og þegar hún gat komið upp orði, hjelt hún áfram með sínn sorglegu frásögu: Aumingja Tómas grjet allan daginn. Jeg hafði engin ráð til að hugga hann. Hann sagði, að það væri ekki til neins fyrir sig að reyna neitt, það yrði bara hlegið að sjer af því hann væri svo illa til fara og drykkjumannssonur. Jeg gjörði alt sem jeg gat til að hugga hann áður en faðir bans kæmi heim, jeg sagði honum að hann myndi verða vondur, ef hann sæi hann gráta. En það dugði ekki, það var eins og hann væri óhuggandi. Svo kom faðir hans heim og sá hann. Hann myndi ekki hafa gjört það sem hann gjörði, ef hann hefði ekki verið drukkinn, því hann er ekki vondur, þegar hann er algáður. Jeg fyrirverð mig fyrir að tala um það, en hann sló drenginn svo að hann datt og meiddist á höfðinu, jeg ímynda mér að hann hefði veikst hvort eð var; en ó, bjartans litli drengur- inn minn, vesalings veika barnið mitt!

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.