Ljósvakinn - 01.03.1925, Blaðsíða 7

Ljósvakinn - 01.03.1925, Blaðsíða 7
LJÓSVAKINN 23 Ritningin er örugg vörn. Peir, sem ekki vilja trúa hinum lát- lausu, hjartnæmu sannindum Biblíunn- ar, leitast stöðugt við, að friða sam- viskuna með einhverju öðru, er þeim sjálfum geðjast betur að. Því minni andagift, auðmýkt og sjálfsafneitun ein- Jhver kenning hefir í sjer fólgna, þess fúslegar er við henni tekið. Þeir, sem slíkt gjöra, óvirða sínar andlegu gáfur til þess að geta fullnægt því, sem hið holdlega hugarfar girnist. Peir eru of vitrir í sínum eigin augum til þess, að rannsaka Ritninguna með auðmjúku og iðrandi hjarta og einlægri bæn um guð- dómlega leiðbeiningu, svo standa þeir varnarlausir gegn blekkingum og afvega- leiðslu. Sá vondi er fús til að verða við óskum hjartans, hann glepur þeim sýn og tælir þá með sviksamlegum hugmyndum, sem hann setur í stað sannleikans. Allir þeir, sem hafna Guðs orði sakir eigin hagsmuna eða af ótta fyrir þvi, að þeir komist í óvináttu við heiminn eða að hann líti þá smáum augum, munu aö lokum verða gefnir skaðlegum villulærdómum á vald, svo að þeim verður ekki unt að trúa sann- leikanum. Þeir, sem vísvitandi hafna sannindum Guðs orðs, munu aðhyllast hverskonar upphugsanlega villulærdóma. Páll postuli talar um vissa menn, sem ekki »veittu viðtöku kærleikanum til sannleikans sjer til frelsunar«. Hann segir um þá: »Og þess vegna sendir Guð þeim megna villu til þess að þeir trúi lýginni, til þess að allir þeir verði dæmdir, sem ekki hafa trúað sannleik- anum, en hafa haft velþóknun á rang- lætinu«, 2. Pess. 2, 10.—12. Með slikar viðvaranir fyrir augum, sæmir það oss að hafa vakandi gætur á þvf, hvaða kenningar vjer meðtökum. Eitt hið kröftugasta meðal i hendi hins mikla afvegaleiðara, eru þær ginningar,* sem staðfestar eru með alls konar undr- um og fals kraftaverkum. Hann kemur fram á sjónarsviðið dulbúinn, klæddur sem ljóssins engill, og leggur snörur sínar þar, sem síst mætti ætla. Ef mennirnir einungis vildu rannsaka Guðs orð með innilegri bæn og einlægri löngun til að vita og skilja hið rjetta, þá myndu þeir ekki vera svo fáfróðir um hið rjetta og sanna og þá myndu þeir ekki gefast ranglætinu og villunni á vald. En þeg- ar þeir hafna því verða þeir villunni og ranglætinu að bráð. Sú kenning er mjög hættuleg, að Kristur hafi enga tilveru haft áður en hann kom til þessarar jarðar. Pessi skoðun ríkir hjá mörgum, sem þó segj- ast trúa Biblíunni, en hún brýtur al- gjörlega í bága við hinn skýra vitnis- burð frelsarans sjálfs um afstöðu hans til föðursins, guðdóm hans og fyrri til- veru. Pessari kenningu er ekki unt að halda fram án þess að rangfæra Ritn- inguna í mesta máta. Pað er ekki að eins að samkvæmt henni sje endur- lausnarverkið óvirt, heldur útilykst trú- in á Biblíuna sem opinberun frá Guði. Ef mennirnir hafna vitnisburði Ritn- ingarinnar um guðdórn Krists, þá er árangurslaust að reyna að tala um fyrir þeim, því að ekkert, hversu vel sem það er rökstutt, getur sannfært þá. »Holdlegur rnaður veitir ekki viðtöku þvi, sem Guðs anda er, því að honum er það heimska og hann getur ekki skilið það«. 1. Kor. 2, 14. Enginn sem heldur fast við þennan villulærdóm get-

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.