Ljósvakinn - 01.01.1926, Blaðsíða 7
Eru radíótæki þin í lagfi? Hefir þú fengið gott samband?
Vorir timar eru miklir uppíundninga-
tímar. Hvert ár færir oss einhverjar ný-
ungar, en ekkert af öllum hinum undra-
verðu hlutum, sem upp hafa verið fundnir,
hafa dregið jafnt að sér athygli allra og
radíótækið. Orðið »RADlÓ« er nú á hvers
manns vörum og um það er ritað meir en
ílest annað; skjótara en flest annað heíir
það grafið sig inn í meðvitund manna, og
er það mjög skiljanlegt, þegar Hlið er á
hverju það kemur til vegar,
Maður getur setið heima hjá sér, og —
ef maður hefir fengið sér víðvarpstæki og
þau eru í réttu lagi — heyrt það, sem við
ber út um allan heim. í margraTj milna
fjarðlægð stendur ræðumaðurinn i ræðu-
stólnum, og hvert orð hans berst til manns
eins skýrt og greinilegi og maður væri
sladdur í sjálfum ræðusalnum. Sama er
að segja um söng og hljóðfæraslátt, hann
hljómar eins fagurt til manns eins og
maður væri í söngsalnum.
Þegar stórmenni nútímans tala, heyrast
hin þýðingarmiklu orð þeirra svo að segja
um allan heim. Blaðafregnir, veðurskeyti,
viðvaranir um veðurbreytingar o. s. frv.,
ryðja sér braut til þúsunda manna, sem
sitja og biða eftir að fá þær nauðsynlegu
upplýsingar, sem slíkt gelur veitt þeim.
Skipin á hafinu fá sínar fregnir, og ferða-
maðurinn getur fylgst með og vitað hvað
skeður í hinum fjarlægustu hlutum heims-
ins. Hver og einn getur svo að segja
fengið löngun sinni og þörfum fullnægt á
þessu sviði. íþróttamaðurinn fær að heyra
hver sigrað hefir á íþróttamótinu, sá, sem
hefir hugann við stjórnmálin, getur fengið
að heyra fyrstu ræðuna, sem nýi forsetinn
heldur, .þeir, sem gefnir eru fyrir dans,
geta dansað heima hjá sér eftir danslög-
um, sem spiluð eru í mörg þúsund milna
fjarlægð. Það er ekki unt að telja upp alt
það, sem hægt er að nota radió eða víð-
varpstækið til; það er hægt að nota það
bæði til ills og góðs.
I?að, sem útheimtist til þess að njóta
góðs af þessari miklu uppfundningu, er
móttökutæki, sem er stilt hæhiega eftir
fjarðlægðinni, sem sendistöðin er í.
Það er í rauninni ekki ætlunin að dvelja
við sjálft þetta undraverða áhald og þær
framkvæmdir, sem gerðar eru fyrir það og
heimurinn lítur mest á, heldur er ætlunin
sú, að leiða hugann inn á hið andlega svið.
Þegar sú spurning er borin upp, hve
langt þetta samband geti náð, verður svarið