Ljósvakinn - 01.01.1926, Blaðsíða 9

Ljósvakinn - 01.01.1926, Blaðsíða 9
LJÓSVAKINN 9 nýjan anda í brjóst, og eg mun taka stein- hjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarla af holdi«. Ez. 36, 26. Þetta nýja hjarta er það besta mótlökutæki, sem unt er að fá, og með því verður oss mögulegt að heyra neilifa lagið«. Gömlu Gyðingaþjóðinni var borið á brýn, að hún hefði sljólt hjarta. Jesús segir sjálfur: bÞví að hjarta I$Tðs þessa er sljótt orðið, og á eyrunum eru þeir orðnir daufir, og augum sínum hafa þeir lokað, til þess að þeir sæju ekki með augunum og heyrðu með eyrunum og skynjuðu með hjartanu og eg læknaði þá«. Malt. 13, 15. Maður getur komist þannig að orði um þetla fólk, að það hafi haft heyrnartólin á höfð- inu, en þó ekkert heyrt, og orsökin var sú, að hjörtu þeirra voru ekki stilt fyrir hina himnesku hljóma. Þeir eru ekki fáir, sem að vísu hafa klælt sig í krislilega skykkju, hafa á sér »yfirskin guðhræðslunnar«, en sem þráll fyrir það ekki njóta þeirrar blessunar, sem lifandi samband við himininn getur veitt. þegar Páll yar á leiðinni til Damaskus, heyrði hanu rödd frá himnum; en hann segir: »Mennirnir, sem með mér voru, sáu að vísu Ijósið, en heyrðu ekki raust hans, er við mig talaði«. Post. 22, 9. Hjörtu þessara manna voru ekki stilt fyrir hina himnesku hljóma, en bjarta Páls var á þessum degi móltækilegt fyrir áhrif frá himnum. Þannig er það enn í dag. Fjöldi manna kemst undir áhrif Guðs, en þeir verða samt sem áður ekki aðnjólandi þeirrar blessunar, sem Drottinn þráir svo innilega að veita þeim. Orsökin er sú, að þeir hafa ekki lært að heyra. Það er sem sé list út af fyrir sig, að heyra á réttan hátt. Jesús sagði eitt sinn: »Gætið þess því, hvernig þið heyrið«. Lúk. 8, 18. Og það, sem til þess þarf að heyra rélt, er eins og áður er vikið að fyrst og fremst þelta, að hafa opið, fúst, meðtæki- legt hjarta. Frelsari vor er hin rétta fyrir- mynd í þessu sem öðru. Hann segir um sjálfan sig fyrir munn Jesaja spámanns, sem lalar um reynslur Krists hér á jörð- unni: »Herrann Drottinn . . . vekur á hverjum morgni, á hverjum morgni vekur hann eyra mitt, svo að ég taki eftir. Herrann Drottinn opnaði eyra mitt og ég þverskallaðist eigi, færðist ekki undan«. Jes. 50, 4. 5. Þetta, að liann þverskallaðist ekki, undan því, að taka á sig þær byrðar, sem Guð lagði á hann, er leyndardómurinn við það, að hann heyrði og þekti hljóm- ana frá himnum. Oft heyrði Jesús rödd af himnum, og þó var þessi rödd, sem hljómaði til hans með skýrum orðum ekki heyranleg þeim, sem með honum voru. Eitt sinn heyrði hann rödd af himnum, er sagði: »Bæði hefi ég gert það dýrðlegt, og mun aftur gera það dýrðlegt, en fólkið, sem stóð þar og heyrði, sagði, að þruma hefði komið. Aðrir sögðu: Engill talaði við hann« Jóh. 12, 28. 29. Þessi rödd af himni var hon- um einum skiljanleg, af þvi að hjarta hans var slilt fyrir boðskap af himnum. Guð, Drottinn talar að vísu eigi altaf á þenna hált til mannanna barna; hann gerir það einnig á margan annan hátt. í hinni slórfenglegu nátlúru geta margir, sem eru móltækilegir fyrir áhrif hennar, heyrt Guð tala. Söngur fuglanna, niður fossins, þyturinn í trjágreinunum, suðan í læknum, já, drunur hafsins, getur alt- saman verið sem rödd Guðs — rödd af himnum, er getur talað til hins mannlega hjarta. Lang oftast talar Guð til vor i hinu skrifaða orði sínu, sem framar öllu öðru, lætur röddina af himnum hljóma skýrt og greinilega til íbúa jarðarinnar. Þeir menn, sem skrifuðu Biblíuna töluðu allir knúðir af Heilögum anda. 2. Pét. 1, 21. Þetta orð er ekki dautt orð, heldur »lifandi og kröft- ugt og beittara hverju tvieggjuðu sverði, og smýgur inn í instu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, og er vel fall- ið til að dæma hugsanir og hugrenningar hjartans«. Hebr. 4, 12. Og Jesús segir

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.