Ljósvakinn - 01.01.1926, Síða 12

Ljósvakinn - 01.01.1926, Síða 12
12 LJÓSVAKINN wÞaö er sem menn gruni að hið óvænt- asta geti dunið yfir. Aldrei heflr ótrygg- leiki alls hins mannlega verið fallinn til að rista dýpra i hugum manna en nú. Þjóðirnar hér í álfu skjálfa fyrir þessum ótryggleika og fyrir ofbeldi í öllum þess mörgu myndum og á mismunandi sviðum þess. Dagar og stundir eru viðburðaríkari nú en tugir ára fyrrum. Hvenær mun klukka tímans ná aftur föstum gangi? wÞað fer angistarhrollur um heiminn á þessum dögum«, segir í einu dagblaðinu. Og enginn kemst hjá að verða þess á- skynja. Þetta er líka einmitt það, sem Kristur sjálfur og guðinnblásnir spámenn segja fyrir í Heilagri ritningu að verða mundi hið áburðarmesta tákn tímanna, er valda mundi þeirri heimsbyltingu, sem bindur enda á þessa öld, og nýir og betri tímar koma. Eftir það að Kristur hefir talað um þessi tákn, þá segir hann við lærisveina sina: »Gætið að fikjutrénu og öðrum trjám, þegar þau fara að skjóta frjóöngum, þá sjáið þér og vitið af sjálfum yður að sum- arið er í nánd. Þannig skuluð þér og vita að þegar þér sjáið þetta fram koma, er Guðs riki í nánd«. (Lúk. 21, 29—31.). Guði sé lof! Vér þurfum þá ekki að ör- vilnast jafnvel á þessum óróa- og ang- istar-tímum. Þetta og ekkert annað er vor von mitt í vonleysi heimsins. Að ríki Guðs mun þó að lokum verða raunverulegt á jörðu hér. Og hvað helzt, sem við ber í heiminum, svo hið óttalega vald vonzk- unnar annars vegar og frelsandi og sigr- andi kraftur fagnaðarerindisins hins vegar — þá er það að eins vottur þess að við lifum á öld »fæðingarhríðanna« (Matt. 24, 8), þegar úrslitabaráttan er háð, og nýja öldin, þar sem Guð verður »alt í öll- um«, mun á eftir koma. Það er því ofan að, sem hjálpin og bjargráðin koma. Eins og i spádóminum »losnaði einn sleinn ekki af höndum manna, og eins og sleinninn, eftir það er hann hefði molað og gert enda á«, valdi ofbeldisins og vonzkunnar í heiminum, »varð að stóru fjalli, sem tók yfir alla jörðina«, þannig mun »Guð himnanna stofna ríki, er standa mun óhaggað að eilífu, og vald þess eigi verða fengið nein- um öðrum lýð i hendur en lýð hins hæsta«. Pað dýrðarríki, þar sem yfirráð Krists frið- arhöfðingjans munu mikil verða og friður- inn aldrei enda taka, »ríkið sem haldið mun verða uppi og staðfest með rétti og réttlæti« og það til weilífrar tiðar«. »Vand- læting Drottins, Guðs hersveitanna, mun þessu til vegar koma«. (Dan. 2, 34. 35. 44. 45; Jes. 9, 6. 7.). E. A. Ef nienuiroir leita ekki til þeirrar einu upp- sprettu, sem hiö fallna kyn á alla von sina undir og allrar hjálpar að vænta frá, þá eru allir þeirra framfaradraumar fánýtir, og þá verða allar tilraunir til þess að göfga mann- kyniö og lyfta þvi á hærra stig árangurslausar. »011 góð og fullkomin gjöf« er frá Guði. (Jak. 1, 17.). Enginn, sem ckki er sameinaður lion- um, getur liaft trútl og göfugt hugarfar. Ilinn cini vegur lil Guðs er Kristur. Hann scgir: »Eg er vegurinn, sannleikurinn og lífið; enginn kemur til föðursins ncma fyrir mig«. (Jóh. 14, 6.). Sá kærleikur, sem er sterkari en dauðinn, vekur í hjarta Guðs meðaumkun með lians jarðnesku hörnum. Um leið og hann gaf oss son sinn, gaf hann oss allan himininn með þeirri einu gjöf. Lif og dauði frelsarans og fyrir- bæn hans fyrir oss, þjónusta englanna, löðun andans, faðirinn, sem verkar allstaðar og í öll- um, hinn sifeldi áhugi himinbúanna, — allt þetta vinnur í sameiningu að endurlausn mannanna. Ó, látum oss hugleiða þá undravcrðu fórn, sem færð er fyrir oss! Látum oss leitast við að meta rétt það starf og það kapp, sem íbúar liiminsins sýna, til þess að frelsa liina glöluðu og leiða þá aftur heim til föðurhússins. E. G

x

Ljósvakinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.