Ljósvakinn - 01.01.1926, Side 14

Ljósvakinn - 01.01.1926, Side 14
14 LJÓSVAKINN aldrei ósigur beðið. Sannleikurinn hefir frá fyrsta morgni mannkynsins verið birtur og boðaður mannanna börnum. Hvar sem sæði sannleiksorðsins hefir verið sáð, liafa komið upp stór öx með fullþroskuðum hveiti- kornum. Saga þjóðanna er ólygnasti vott- urinn um það, hvað þetta almættisorð hefir afrekað. Einu sinni var Viktoría Englandsdrottn- ing spurð: »Hverju þakkar yðar hátign veldi og vegsemd Englands?« er hún var stödd á kynnisför í höllinni i Buckingham. IJá tók hin hygna drottning Biblíuna og rétli hana að spyrjanda, og sagði um leið: »þessari bók, yðar hágöfgi!« En hve það er gagnstætt heilbrigðri hugs- un og heilbiigðri skynsemi, er þessi grund- völlur hins sanna mikilleika, hið eiiífa orð Guðs, verður fyrir árásum og er feit úr gildi með því að kalla það úrelt, ótilhlýði- legt og óvísindalegar leifar af hjátrú og barnaskap! Því að enginn sá, er þekkir sögu Englands, getur efast um, að Viktoría drotning sagði satt. Hefði Biblían ekki verið, þá hefðu vís- indi, listir og iðnir vorrar aldar aldrei náð þeirri hæð og dýpt, sem staðreynt er. Ali- staðar hefir Biblían verið fyrirrentiarinn, brautryðjandinn, þar sem ávextir menn- ingarinnar hafa náð þroska á tié mann- kynsins. I5að er hún, sem hefir skapað tímahvörfin, þjóðmenninguna, þjóðfélags- skipulagið og alt það sem heldur uppi og lengir saman. í henni er enn fólginn sá sjóður speki og vísindaiegrar dýptar, að þótl komandi kynslóð ausi af þeim brunni, eins og hinar horfnu kynslóðir hafa gert, þá tæmist hann aldrei; en þúsundir kyn- slóða eiga ekki eftir að lifa á jörð vorri, því að orð sannleikans staðfestir að nú sé uppi hin siðasta kynslóð. (Matt. 24, 34.). Peir, sem bygt hafa líf sitt og starf á sannleiksorðinu hafa varðveill mannkynið og leitt það fram á við; þeim er það að þakka, að mannkynið er ekki fyrir löngu sokkið á kaf í syndahaf, drukknað i rösl lyginnar, vantrúarinnar, hatursins og tnann- vonzkunnar. Það er meistarans óbifanlega staðfesting á sannleikanum, sem ávann bæði honum og öllu mannkyninu eilifan sigur. þetta gerði hann með orðunum: »Ritað er«. Með þeim orðum vísaði hann á bug árás- um lyginnar föður, er þeir stóðu á þak- brún inusterisins og fjallinu. En þrátt fyrir ósigurinn hélt hinn gamli óvinur áfram í blindni sinni árangurslausu barátlu. Og er hann loks hugðist hafa unnið sigurinn á Golgata á langafrjádag, þá vann sannleik- urinn sinn mesta sigur. Þá ávanst sú hlýðni að nýju, sem lýndist við óhlýðnina í ald- ingarðinum í Eden. þegar Jóhann Húss var á bál borinn í Konstanz sumarið 1415, og logarnir léku um þennan frumherja sannleikans og rétt- arins, þá hlógu harðstjórar og þjónar ranglætisins og þá virtist sem ranglætið og lygin hefðu sigrað. En þvi fór fjarri. Kyndill sannleikans logaði enn skærar, er píslarvættisbál Jóhanns Húss sloknaði. þegar myrkur kaþólskunnar grúfði yfir þjóðunum á 14. og 15. öld, þá kviknaði morgunbjarmi siðbótarinnar og ljós sann- leiksorðsins rauf þokuna. Á öllum öldum og hvernig sem ástalt hefir verið, þá hefir sannleikurinn staðist allir árásir; saga kristindómsins, drifin blóði píslarvoltanna, er órækasti volturinn um það. Þegar frelsarinn stóð frammi fyrir Pila- tusi þá spurði Pilatus: »Hvað er sannleik- ur?« (Jób. 18, 38). Það var ekki af fávisku að Pilalus spurði, því að landstjórinn vissi vel hvað sannleikur var í þessu efni. það sýna þessi orð hans rétt á eftir: »Eg finn enga sök hjá honum«. Pílatus vildi fá kærendurna til að hugsa alvarlega um hinar skelfilegu afleiðingar af því, ef þetla spor væri stigið út af vegi sannleikans og rétt- lætisins. Kærendurnir fengu hefndargirni sinni og morðgirni sinni framgengt i þessu efni. — Peir unnu sigurinn. En þeir og nöfn þeirra eru nú gleymsku hulin fyrir löngu, en sannleikurinn og

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.