Ljósvakinn - 01.01.1926, Blaðsíða 16

Ljósvakinn - 01.01.1926, Blaðsíða 16
16 L J Ó S V A K I N N Grundvöllurinn, sem aldrei haggast. Margir liafa reynl á liönum öldum að eyða þeim grundvelli, sem verið hefir von trúaðra á öllum öldum hjá öllum kyn- slóðum. Hin hærri biblíukrilík, verald- arspekingar og Krists-halarar hafa reynt með aliskonar röksemdum, fullyrðingum og uppspunnum sönnunum að kippa fót- um undan trúnni á Jesúm sem son Guðs og frelsara heimsins. Þeir hafa reynt að sanna, að hann hafi veiið eins og ein af þeim persónum sem þjóðsagnir skýra frá og jafnvel að hann hafi aldrei verið til. En allar þessar tilraunir hafa strandað jafnt í spádómum sem i sögu, á sönnunum, sem staðfesta boðskapinn um Jesúm, sem hinn eina, sem mennirnir geta orðið hólpnir fyrir. Páll postuli stóð einu sinni í fylkingu Krists-hataranna. í varnarræðu sinni fyrir Ágrippa konungi játar hann sjálfur: »Eg fyrir milt Ieyti taidi mér það skylt að beila mér mjög á móti nafni Jesú frá Nazaret«. (Post. 26, 9). Hann dregur heldur ekki dnl á, hversu ákaft hann hefði tekið þátt í ofsókninni gegn binum krislnu, (sbr. Post. 26, 10. 11). »Eg gerði það óvitandi í vantrú«, segir hann sjálfur. (1. Tím. 1, 13). En Páll sannfærðist um, að það væri sannur boðskapur, að Jesús væri hellan, sem mennirnir byggja á eilífðarvon sína. En hvað hann lagði þá mikið kapp á að boða þennan mikla sannleika, sem boðaður hafði verið i fyrirbendingum fyrri kynslóð- um, en sem á dögum Páls opinberað- ist í Jesú Kristi líkamlega:« Hann hélt því hvarvetna fram, hvar sem hann starf- aði, að Jesús Kristur væri hinn eini frels- ari frá synd. Álumein það, sem eyddi krafti kynslóðarinnar, syndin, yrði alls eigi læknuð nema fyrir benjar og blóð Jesú. (Jes. 53, 4—5). Pess vegna segir bann: »Eg vildi ekki vita neitt á meðal yðar, annað en Jesúm Krist og hann krossfestan (1. Kor. 2, 2). Kristur, sem er höfundur og grundvöllur trúar vorrar, er í Biblíunni talinn jafn Guði föður. Jesús sagði: «Áður en heimur- inn var til, var eg«. Höfundar Biblíunnar taka það fram aflur og aftur, að hann hafi verið til, áður en hann kom í holdinu. »Þá stóð eg honum við hlið, sem verkstýra, og var yndi hans dag hvern leikandi mér fyrir augliti hans alla tima«. (Orðskv. 8, 30. 31). Hann lifði með föðurnum áður en nokkur vera væri sköpuð. Páll lýsir honum svo, að hann sé »ímynd hins ósýnilega Guðs og frumburður allra skepna bans«. (Kol. 1, 15). Hann á rót sína að rekja til Guðs sjálfs og er frá eilífðardögum. Hann var sú eilífðarvon, sem ílutti fallinni kynslóð nýja von, eftir það er þau Adam og Eva höfðu brotið lögmálið í Edens-garði (1. Mós. 3, 15). Guð fræddi sjálfur vora fyrstu foreldra, að konunnar sæði skyldi mola höfuð höggormsins. Og sæðið, afkvæmið, var Kristur. (Gal. 3, 16). Af þvi að Kristur er Guð, þá er hann máltugur frelsari. Hann hefir vald til að »leggja undir sig alt«. (Fíl. 3, 21). í sálmunum er hann kallaður: »Konungur dýrðarinnar«. »Pað er Drollinn, hin volduga hetja, Drottin, bardagahetjanff. (Sálm. 24, 8). Gegn hon- um reis Satan, voldugur engill ásamt þriðj- ungi af englum himinsins og barðist«. (Jes. 14—12 —15; Opinb. 12, 7). En þeir fengu eigi unnið bug á Kristi. (Opinb. 12, 8). Hann frelsaði himnariki frá styrjöldum og uppreisn og kom friði og einingu meðal allra íbúa þess. (Opinb. 12, 10, 11). Hann tók að sér að útrýma syndinni á jörðinni. Faðirinn fól honum það hlutverk á hendur og hann gerðist þjónn. (Fíl. 2, 5—8). Pað er búið að leggja grundvöllinn að hjálpræði mannanna. Faðirinn hefir lagt

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.