Ljósvakinn - 01.01.1928, Qupperneq 3

Ljósvakinn - 01.01.1928, Qupperneq 3
LJÓSVAKINN 3 þjóðanna, sem verður þá meðal þjóðanna sjálfra. þetta er daglegur viðburður; það er aldarháttur þessarar aldar; andi þess- arar aldar, skaðlegur sjúkdómur í þjóð- félaginu eftir ófriðinn — nokkurskonar sálfræðilegt afbrygði í tilraunum einstak- linganna. Eftir að þessi orð voru skrifuð las ég eftirfarandi setningu úr ræðu próf. Stangs, sem er formaður nefndar þeirrar er út- hlutar Nobelsverðlaunum. Ræðuna hélt hann er úthlutað var friðarverðlaunun- um til Ferd. Buisson og Ludwig Quidde 10. des. síðastl.: »Striðshættan er ekki að eins frá hinum ýmsu ríkjum, frá undir- búningi þeirra og stjórnmálastefnu. Hættan er eins i geðbrigðum fjöldans, frá sálar- Iffi einstaklinganna«. Þetta mun ómótmæl- anlega satt vera. Einkennileg starfsemi. í mörg ár hefir verið til starfsemi, sem nefnd hefir verið alþjóðabandalagið. Fram- kvæmdarafi þess liefir verið meðal manna, sem haldið hafa tundi með sér og eru af þeim þjóðum heimsins, sem viðurkenna þessa starfsemi á pappirnum. Hið mikla og göfuga takmark þess á að vera, að vinna að samvinnu og samlyndi meðal þjóða þeirra, sem senda fulltrúa sina á fundi þess, til þess að ráða úr deilumálum og deiluefnum á friðsamlegan hátt o. s. frv. Eitt af þvf sem haft var á oddinum við stofnun bandalagsins, var það, að þetta yrði ráð til þess að kveða niður styrjaldir. Spor til að afnema strfð er að draga úr vígbúnaði. Og að draga úr vígbúnaði ætti að vera spor til afvopnunar, og það er án efa nokkuð, sem allar þjóðir vildu gjarna að ætti sér stað. Víst er um það, að óhætt er að segja að mikill meiri hluti fólks mundi vera með hugsun þeirri að draga úr vfgbúnaði, og jafnvel koma á af- vopnun, að svo miklu leyti sem það sæi það tiltækilegt og mögulegt. Það er þvf ekki nema réttmæt hugsun, að menn þeir sem vinna að slfku málefni, sem alþjóðabandalagið hefir með höndum, haíi mikinn meiri hluta allra viðkomandi einstaklinga i rikjunum að bakhjarli og vinni í samræmi við óskir þeirra. Og hvað annað ætti að skapa heppilegan og góðan árangur af verki þeirra? En hvernig er nú ástatt með málefnið í raun og veru? Slríðsvagn á leið yfir nujrlendi. Nú komum við að staðreynd, sem ekki að eins er undraverð, en líka mjög þýð- ingarmikil. Við fáum, hvorki meira né minna, en svar þjóðanna við kostgæfnu starfi Pjóðbandalagsins. Við getum ekki annað en lýst undrun vorri yfir því svari. í hér um bil niu ár eftir að heimsófriðn- um linti, hefir Pjóðbandalagið unnið að þvi að minka vígbúnað rikjanna. En hver hefir orðið árangurinn af hinni viðtæku starfsemi þess? Striðshættan hefir ekki minkað, að svo miklu leyti að mögulegt sé að sjá. Þjóðirnar hafa alls ekki hætt að hugsa um ófrið. Ástandið eins og það er í dag er

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.