Ljósvakinn - 01.01.1928, Qupperneq 6

Ljósvakinn - 01.01.1928, Qupperneq 6
6 LJÓSVAKINN inn er augum manna. I hinum ósýnilega heimi ber viö ýmislegt, sem er í nánu sambandi við viöburöi þá, sem nú gerast fyrir augum vorum. Þetta getum við að eins stuttlega athugað til að enda með. Þriðji kap. hjá Jóel hefir að geyma ýms orðatiltæki, sem ljóslega benda til þess að það eru hinir síðustu dagar, sem hann fjallar um. í*ar lesum við um »hinn mikla og ógurlega dag Drottins« og um »dóm- inn«. 1 þessum kap. er greinilega sagt fyrir um hernaðarráðstafanir meðal þjóö- anna á síðustu tfmum. Þær munu taka sig saman til ófriðar f stórum stíf. »Flokk- arnir þyrpast saman í dómsdalnum; því að dagur Drottins er nálægur í dómsdaln- um«. Lesið þenna kap. með eftirtekt og þið munuð finna að hann er að byrja að rætast. Ef hægt væri er talað enn skýrar um þetta í 16. kap. í Opinberunarbókinni. Þar er það dregið fram, að meir en mann- legir kraftar séu að starfi, i sumum þeim atburðum er eiga sér stað við endi þessa heims. Guð sýndi Jóhannesi, að við undir- búning þess mikla veraldarstríðs' er ætti sér stað rétt fyrir endurkomu Frelsarans, mundu andar starfa með sérstökum krafti meðal mannanna. Og tökum eftir hvað þessir andar gera, þessir vondu andar: »Feir eru djöfla-andar, sem gera tákn og ganga út til konunga allrar heimsbygð- arinnar, til að safna þeim saman til stríðs- ins á hinum mikla degi Guðs hins al- valdaa. þetta strfð mun standa yfir undir plágunum og ná hámarki sinu undir hinni sjöttu af hinum sjö plágum, sem Guðs orð talar um að helt verði yfir jörðina eftir að náðartíminn er úti. En sjálfsagt er heimilt að álykta, að áður en þessi úr- slita orusta hefst muni undirbúningur vera að hálfu þjóðanna í lengri eða skemmri tíma. Þetta virðist og liggja f orðum spá- dómsins, sem segir að þeir munu ganga út til að safna saman til strfðsins. Hérna höfum við ráðningu á gátunni, hina eiginlegu orsök þess að þjóðirnar búa sig svo ósleitlega til striðs þrátt fyrir óskir fjöldans um hið gagnstæða; og sem hafa komið i ljós á þann hátt að stofna al- þjóðabandalagið til þess að vinna að friði og afvopnun. Það væri sannarlega óskandi að þetta háleita takmark gæti náðst, og þess óska vfst flestir. En vitandi það að Guðs orð f þessu, sem öllu öðru talar ótvíræðan sannleika, erum við í engum efa um hvert ber að siðustu. Engin mann- leg stjórnmálastarfsemi, vizka eða kraftur getur gert orð Guðs kraftlaust. Og þaö sem nú skeður á þvi sviði, sem um hefir verið rætt í framanritaðri grein, staðfestir fyllilega spádóminn. Það er svar þjóðanna við friðarráðstöfunum alþjóðabandalagsins. E. A. Hvað það kostaði hann. »Hvers virði er þessi eign?« sagði maður nokkur við annan mann i þvi að þeir óku fram hjá fögrum herragarði, umkringdum frjósömum ökrum. »Eg veit ekki hvers virði hún er, en ég veit hvað hún kostaði síðasta eiganda«. »Hvað kostaði hún hann?« »Sáiu hans«. Báðir voru hljóðir um stund, svo sagði hinn siðari: »Sá, sem við tölum um var sonur ráðvands og heiðarlegs verkamanns. Á æskuárum var hann einlægur og heittrúaöur; hann vann á stórri verzlunar-skrifstofu. Hann elskaði Frels- ara sinn af öllu hjarta þangaö til hann varð meöeigandi verzlunarinnar og meðlimur hluta- félagsins. Við það fékk hann meira að starfa og enn meira að hugsa um. Áhugi hans i and- legum efnum fór smáminkandi, en áhuginn fyrir tímanlegum auðæfum vaxandi. Áhyggjur þessa heims kæfðu orðiö. Hann var ekki gamall þegar hann var orðinn auðugur. En hann var svo fátækur i hjarta sinu, að cngum sem þekti hann gat til hugar komið, að hann hefði eitt sinn elskað og tiiheyrt þeim sem sagði: »Sælla er að gefa en þiggja« Hann keypti svo þessa stóreign og reisti þetta skrautlega hús. Nokkru síðar varð hann heilsuiaus og dó. Skömmu fyrir andlát sitt sagði hann: »Velgengni mín hefir orðið eyðilegging min«. Hversu auðvirðilegt það verð var, sem hann seldi eilífa iífið fyrirt En gera ekki margir hið sama? »Að hvaða gagni kæmi manninum þótt hann eignaðist allan heiminu, en liði tjóu á sálu sinni?«

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.