Ljósvakinn - 01.01.1928, Blaðsíða 11

Ljósvakinn - 01.01.1928, Blaðsíða 11
LJÓSVAKINN 11 Auða spjaldið. F. Robertson. Það var á afmælisdaginn hans Jóhanns. Hann hafði lengi hlakkað til afmælisdags- ins og nú var hann kominn, loksins. Um morgunverðarbilið gaf faðir hans honum fallegan bát tii þess að sigla með. Jóhann gat varla látið vera að dansa fram og aftur i herberginu. »Ó, pabbi!« hrópaði hann. »Þelta er falleg afmælisgjöf«. Þá kom einhver aftan að honum og kysti hann á hvirfilinn. »Vonandi færðu margar afmælisgjafir, drengur minn«, sagði móðir hans. »Ó, mamma«, sagði Jóhann blóðrjóður i framan, »sjáðu hvað pabbi hefir gefið mér; er þetta ekki fallegur bátur?« »Jú, hann er fallegur«, sagði mamma hans, sem auðsjáanlega var á sama máli. Þegar þau voru — eftir fimm minútur — farin að borða, sagði hún við Jóhann: »það er eitt, sem þú verður að lofa mér og muna eftir að efna, og það er að þú farir aldrei einn ofan að vatninu með bátinn þinn«. »1*80 máttu vera viss um«, svaraði Jó- hann strax. En þó fór það svo. — Daginn eftir kom eitthvað það fyrir, sem varð til þess að pabbi og mamma gleymdu bátnum. Mamma kom ekki niður til þess að borða morg- unverð, og pabbi hans Jóa sagði alvarlega: »Þú mátt helzt ekki koma upp til mömmu þinnar í dag. Hún er ekki vel frisk og þarf að hafa það rólegt«. Daginn eftir sagði pabbi Jóa aftur við hann: »Þú mátt ekki ónáða mömmu þína í dag, því læknirinn segir að hún verði að hala næði«. Drengurinn fékk nú ekki að fara inn í baðherbergið, því þá mundi hann hafa truflað þá veiku, er hann lét vatnið renna. Hann gat þvi ekki siglt með bátinn sinn þar. Hann gekk því um leiður. Hon- um fanst hann alt i einu vera einmana er hann starði yfir engið út um gluggann. Alt í einu kom hann auga á vatnið. Hvers- vegna ætli ég geti ekki siglt þar með litla bátinn minn, hugsaði hann með sér. Hjartað barðist í brjósti hans af áhuga, að komast að vatninu, er hann gekk af stað — — en hann gleymdi einhverju. Þegar hann kom niöur að vatninu, gleymdi hann öllum erfiðleikum og leið- indum meðan hann horfði á skipið sitt, sem skreið eftir vatninu. Oft hrópaði hann upp yfir sig af ánægju. Loks dró hann bátinn í land, þurkaði vandlega af honum með vasaklútnum sinum, og fór svo af stað heim. Jóhann litli var nú orðinn svangur. Og þegar hann var kominn hálfa leið kom önnur tilfinning einnig til greina. Honum kom alt í einu til hugar loforðið, sem hann hafði gefið mömmu sinni, um að fara aldrei einn ofan að vatninu með bát- inn. Hvað hafði hann gert? Hanu stóð augnablik sem steini lostinn. Iljartað virt-

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.