Ljósvakinn - 01.01.1928, Síða 12

Ljósvakinn - 01.01.1928, Síða 12
12 LJÓSVAKINN ist vera stansað í brjósti hans. Hann hafði brotið loforð silt. Hann mundi ekki eftir öðru eins á æfi sinni. Hann varð alt í einu svo þreyltur í fótunum og báturinn var lika orðinn þungur alt í einu. Pegar hann kom heim, skildi hann bát- inn eítir niðri í ganginum, en gekk hægt upp á loft að herbergi móður sinnar. Þegar hann kom að dyrunum voru þær opnaðar og ókunnug stúlka kom út — hún var í hvitum fötum með hvíta húfu á höfðinu. Hún stöðvaði hann, þegar hann ætlaði að smjúga inn fram hjá henni. »Þú mátt ekki fara inn«, sagði hún. »En — — jú — ég þarf að segja henni mömmu nokkuða, sagði Jóhann og varð rjóður í framan, og varir hans báru vott um, að hann þyrfti ekki mikið til að fara að gráta. »Þú verður víst að bíða með það«, sagði hjúkrunarkonan. »En það er mjög áríðandi«, sagði dreng- urinn með tárfylt augu. En hjúkrunar- konan gerði ekki annað en að hrista höf- uðið. Nú heyrðist bávaði úti fyrir. Lækn- irinn var að koma. Jóhanu varð alveg utan við sig. »Læknir. Má ég ekki tala við hana mömmu«. Hann ætlaði að fara að gráta, en stilti sig svo. »Ó, lofaðu mjer að sjá hana. Pað er nokkuð, sem ég þarf endi- lega að segja henni. Nokkuð, sem er mjög þýðingarmikið«. »Ekki í dag, vinur minn«, sagði Iæknir- inn við hann. Þegar hann sá hve Jóhann litli varð sorgmæddur, þá iðraðist hann næstum að hafa vísað drengn- um á bug og sagði: »En þú gætir skrifað mömmu þinni brjef og sagt henni eitt- f hvað um þelta afar-þýðingar- mikla efni. Heldur þú ekki, að þú getir það?« IJetta varð til þess að gefa drengnum von. Bréf — það mundi vera betra en ekkeit. Hann gekk með hægð inn í herbergið sitt, greip spjaldið sitt og settist með það. »Kæra mammaki krotaði hann á spjaldið. »Ég fæ ekki að koma inn til þín, og þess vegna skrifa ég þér þetta biéf til þess að segja þér, að mig hryggir það, að ég gætti ekki að því, að halda loforðið. Ég sigldi með bátinn minn einn við vatnið í dag. Ef þú vilt fyrirgefa mér, þá þurka þú þelta af spjaldinu og sendu mér það aftur. Þinn Jóhann«. Þegar hann var búinn að skrifa þelta, fór hann með spjaldið upp á loft og barði hægt að dyrum. »Gerðu svo vel að fá mömmu þetta«, sagði hann við bjúkrunar- konuna. t*ví næst fór hann inn til sín og lagðist niður á teppið á grúfu, og honum fanst hann vera svo afar-mikill einstæðingur. Hann hefir liklega sofnað, því í rökkrinu vaknaði hann alt í einu við, að einhver stóð við hliðina á honum með spjaldið í hendinni. »Móðir þín sendi mig með þetta til þin«, sagöi hún um leiö og hún rétli

x

Ljósvakinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.