Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 13

Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 13
LJÓSVAKINN 13 boDum spjaldið. Jóhann settist upp og néri augun. Hafði mamma skrifað svar? Nei, spjaldið var autt! Eu eftir að hafa athugað það nánar, sá hann, að það var vott. Það var undarlegt! Samt var hann viss um eitt, og það var, að mamma hans hefði fyrirgefið honum, því hann hafði tekið það fram, að ef hún vildi fyrirgefa honum, skyldi hún þurka út af spjaldinu. Og spjaldið var autt. En það var vott. Hvers vegna? Og alt í einu skildi hann það, og gleði hans breyttist snöggvast i sársauka. Mamma hans hafði fyrirgefið honum, en hún hafði felt tár af þvf nann hafði brotið loforð sitt. Aldrei, ekki einu sinni löngu seinna, þegar hann var orðinn fullvaxinn maður gleymdi Jóhann hinu auða spjaldi, sem tilkynti honum, að mamma hans hafði fyrirgefið honum, og að það hafði valdið henni tára. Börn! Saga þessi hefir lærdóm að geyma. Fyrst og fremst sýnir hún, að við eigum að hlýða foreldrum okkar. Og ef við syndg- um gegn Guði og hryggjumst af þvi og jálum hana fyrir honum, þá mun hann fyrirgefa okkur vegna Jesú Krists. En syndir vorar hryggja vorn himneska föður. Það hefir og kostað hann mikið, að geta fyrirgefið oss. Það hefir kostað hann hans elskaða son, Frelsara vorn Jesúm Krist, sem varð að láta lífið á krossinum. »Vér verðum læknuð fyrir hans benjar«. Deilan um upprisuna. Hvaða þýðingu hefir upprisukenningin í fagnaðarboðskapuum? í hverskonar sambandi er upprisan við endurlausnarstarfið? í* ví eru ekki allir sammála um þelta aliiði i frelsunaráforminu? Bibliu-gagnrýning. I’að var deila um upprisuna á dögum Jesú. Og það er einnig deila um hana á vorum dögum. Þá var það flokkur fræðimanna, er kölluðust Saddukear, sem neituðu upprisu dauðra. Á vor- um dögum eru það menn með öðrum nöfnum, sem gera slíkt hið sama. Nú eins og þá eru skiftar skoðanir um þelta þýðingarmikla atriði kristindómsins. Atriðið er mikils um vert, eins og hver maður, sem rannsakar hina Heilögu ritningu með gaum- gæfni kemst að raun um. Pað er líka yfirgrips- mikið og bindur saman hina krislilegu kenningu. Það er nú samt svo, að upprisukenningin hefir einhvernvegin mist kraft og gildi í augum margra, sem þó trúa fagnaðarerindinu. Ýmsar kenningar, sem ekki eiga uppruna sinn í Bibliunni hafa smeigt sér inn í kristnina og unnið þar hefð í liugum fólks — en afleiðingin hefir svo orðið að mönnum hefir fundist upprisan óþörf. Að minsta kosti ekki séð fullkomlega hvert aðalatriði hún

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.