Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 16

Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 16
16 LJÓSVAKINN árum. Hefðu þeir verið þar, hefðu þeir verið lifandi. En af svari Jesú sjáum vér, að þeir voru meðal hinna dauðu. Eins og aðrir, sem sofnað hafa í trúnni, bíða þeir eftir því frelsi, sem mun opinberast á hin- um siðasta tíma, þ. e. við endurkomu Frelsarans, því það er þá, að upprisa rétt- látra skeður. 1. Pess. 4, 16. 17. Þegar Pétur og hinir postularnir sönn- uðu á hvítasunnudaginn, að kenningin um upprisuna væri í samræmi við Ritninguna, vitnuðu þeir í spádóm Davíðs í Sálm. 16, 8. . . Frásagan um þetta finst í Posts. 2, 23.—32. Pétur postuli tekur það fram þarna, að Davíð hafi ekki getað talað þarna um sjálfnn sig, þvf að hann er bæði dáinn og grafinn, og leiði hans er til hjá oss alt til þessa dags. En af því Davíð var spámaður, vissi hann hverju Guð hafði lofað, talaði hann af því að hann sá það fyrir (spáði) um upprisu Jesú Krists. Á hinni fyrstu kristniboðsför sinni til Antfokkíu, notaði Páll postuli þetta sama í ræðu sinni, er hann hélt f Antiokkiu í Pisidíu. Hann sér enn fremur sönnun fyrir sama atriði í Jes. 55, 3., sem hann vilnar til þannig: Yður mun ég veita heilögu óbrigðulu fyrirheitin, sem Davíð voru gef- in. Og einnig i 2. Sálm. finnur hann sönn- un fyrir upprisunni. (Sjá Posts. 13, 32.-37). Upprisan í sambandi við hið endanlega frelsi. Eins og bent hefir verið á, er það sér- staklega poslulinn Páll, sem sýnir fram á stöðu upprisunnar og þýðingu í írelsis- áforminu. Eða með öðrum orðum, hann er sá, sem með skýrustum orðum sýnir oss fram á, hve nauðsynleg upprisan er; og hvers vegna hún er svo nauðsynleg. Þetta gerir hann í hinni dásamlegu fram- setningu sinni í 15. kap. í 1. Korintubréfi. í þessum söfnuði virðast hafa verið ein- hverjir, sem ekki trúðu á upprisu dauðra. Ef til vill hefir þelta fólk verið undir svip- uðum áhrifum hugmynda og menn þeir á Krists tímum, er ekki trúðu upprisunni (t. d. Saddukear) eða þeirra á vorum tím- um, sem ekki tiúa henni, vegna þess, að þeir gera ráð fyrir því, að hinir trúuðu séu nú þegar í himninum (kenning, sem ekki hefir upptök sín i Heilagri ritningu), hvernig, sem þessar hugmyndir hafa komið til þeirra tíðar manna (það ætlum vér ekki að tafa um í þessari grein), þá lekur Páll posluli efnið fyiir til þess að upp- fræða þá um sannleikann á þessu sviði eins og öðru, og leiðrélta hina villandi hugsun, sem smeygt hafði sér inn í hugi meðlima safnaðarins (nokkurra). Postulinn byrjar á því, að tala um upp- risu Jesú, og bendir á að þeirri staðreynd verði ekki neitað, og hún sé það, sem sanni upprisu dauðra- og enn fremur, að sé Kristur ekki upprisinn, svo risi heldur enginn annar upp. í stultu máli: Ef mað- ur ptédikar, að Ktistur sé upprisinn, þýðir ekki að neita því, að aðrir rísi upp. Og ef dauðir ekki rísa upp alment, þá þýðir ekki að halda því fram, að Kristur hafi risið upp. Petta tvent er bundið saman svo ómögulegt er að skilja það að: Lesið nákvæmlega 1. Kor. 15, 12. 13. Þvf næst bendir postulinn á: ef Kristur er ekki upprisinn, þá er ónýt prédikun vor, ónýt líka trú yðar (14. v.). Petta kemur máske mörgum á óvart. Minsta kosti munu ekki allir hafa yfirvegað ná- kvæmlega þessa röksemdaleiðslu Páls post. Hvers vegna skyldi prédikun postulans verða ónýt (árangurslaus, samkv. frum- málinu), ef hinir dánu í trú rísa ekki upp? Ef við fylgjumst með Páli lengra, eftir að hann hefir játað sig hafa verið í gagn- stöðu við Guð sinn (áöur en hann snéiist) endurtekur hann aftur sömu yfirlýsinguna í 16. v.: Pví ef dauðir ekki lísa upp, er Kristur ekki heldur upprisinn. Og enn tek- ur hann þelta fram með svipuðum orðum: en ef Kristur er ekki upprisinn, er trú yðar fánýt (þ. e. ónýt gagnslaus), þér eruð þá enn i syndum yðar 17. v. (Kristur er

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.