Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 21

Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 21
LJÓSVAKINN 21 Þessari spurningu er búið að svara. Jesús, sem bauð hvildardagshald í byrjun, sagði að hvíldardagurinn hefði orðið til manns- ins vegna. Það, að hvíldardagurinn var gefinn manninum í byrjun, sýnir, að það var ætlun Guðs að allir menn á öllum löndum héldu hann. t*að stendur og að hann helgaði hann, með öðrum orðum að þessi dagur yrði notaður til heilagra hugleiðinga og miskunnarverka. Allir lærðir menn viðurkenna, að hið hebreska orð feli þessa merkingu í sér. í’eytið lúðurinn i Zion, stofnið til helgrar föstu, boðið há- tíðastefnu (Joel. 2, 15 ). Orðið helga þýði þá lika að ákveða, setja til hliðar. Og þetta er einmitt það sem skaparinn gerði. Hann ákvað að hvildardagurinn skyldi helgur haldast. Hann varð til vegna allra manna. En þrált fyrir þessa greinilegu yfirlýsingu að hálfu Jesú, halda margir þvi fram, að hvildardagurinn hafi verið gefinn Gyðingum einum, alveg eins og orðið maður þýddi sama og Gyðingurl Það væri eins viturlegt að staðhæfa, að Guð hefði skapað konuna handa Gyðing- um einum, því við lesum í 1. Kor. 11, 9? (þar er vikið að sköpuninni), þvi ekki var maðurinn skapaður vegna konunnar, held- ur konan vegna mannsins (sama orðið í frummálinu i báðum þessum ritningar- stöðum Mark. 2, 27. og 1. Kor. 11, 9 ). Ætli nokkur segi það i alvöru, að úr því konan var sköpuð vegna mannsins, að hún hafi þá verið sköpuð að eins handa Gyðingum? Grundvöllur hvíldardagsboðorðsins er hinn sami á öllum tímum og gildir á öll- um tímum jafnt. Og ástæðan er sú: að á sex dögum skapaði Guð himinn og jörð o. s. frv. Þetta Iiggur ekki að eins til grundvallar gagnvart einni þjóð, heldur öllum þjóðum. Gyðingar héldu hvíldar- daginn einnig af öðrum ástæðum eins og lika sumar aðrar þjóðir gerðu. En ástæða sú, að menn haldi hvildardaginn liggur eins fyrir öllum þjóðum; boðið nær þvi til allra, hvort sem þeir nefnast Gyðingar eða heiðingjar — nema einhver vilji koma með það, að Gyðingar hafi verið þeir einu sem skapaðir urðu — og að allir aðrir séu komnir út af öpum. Nóg um það. Boðorðið, sem hvildardagurinn er bundinn við, gildir fyrir allar þjóðir jafnt. Hvernig varð hvíldardagurinn til? Hann varð til úr sérstökum degi, nefnilega hin- um sjöunda degi, siðasta deginum i fyrstu vikunni. Hann varð til úr sjöunda degi vikunnar. Skaparinn hvíldist á þessum á- kveðna degi, hann blessaði þennan sér- staka dag, og bann helgaði þennan sama ákveðna dag. Við megum ekki fmynda okkur eins og sumir halda fram, að helg- in, sem ákveðin var f fyrslu, sé nokkuð sem laust sé við daginn og verði því fært á hvaða dag sem vera vill. — Eins og þegar ein persóna getur farið í föt annarar. Helgin er dagurinn og dagurinn er helgin. Drottinn tók til ákveðið tré i aldingarð- inum Eden til þess að prófa hlýðni manns- ins. Á sama hátt er hvildardagurinn ákveð- inn dagur. Hann er ekki einhver dagur, né einhver af hinum sjö dögum vikunnar, heldur hinn sjöundi dagur. Menn geta hvílt likama sinn á einhverjum af hinum sjö dögum vikunnar, en það verður aldrei hvildardagur Drollins vors fyrir þvi. Ekki að elns einn dagur af hlnum sjö. Fornaldarþjóðirnar féllu frá hinum sanna Guði og dýrkuðu hjáguði. þær tilbáðu sól- ina, tunglið og stjörnurnar; og þær gáfu vikudögunum nöfn eftir goðum sínum. Hinn þekti stjörnufræðingur Lockyer, segir um þetta atriði: Pó að vikan, eins og tilfellið er með daga, mánuði og ár, standi ekki í sam- bandi við rás hinintunglanna, þá eru daga- nöfnin, sem runnin eru frá Egiptum nefnd eftir himintunglum, er þeir þektu. Róm- verjar (einnig Grikkir og aðrar þjóðir austur frá) notuöu sömu reglu I dagatöl- unni eins og sésl hér.

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.