Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.04.1900, Side 7
II. ÁRG.
31
MÁNAÐARTÍÐINDI.
ef til vill haldið að það væri svo auð-
velt að vera kristinn, en svo þegar
þið fóruð að reyna það, þáfannstyð-
ur það vera þungt og fóruð að horfa
til baka á það, sem þið færuð ámis
við. Þjer funduð með sjálfumykkur
að það er afar þungt að neita ykk-
um hitt og þetta, sem þjer voruð van-
ir áður, en funduð nú í samvizkum
yðar að ekki gat samrýmst anda fje-
lagsins. Þá var það víst svo að marg-
ir ykkar tóku heldur þann kostinn að
láta undan yður sjálfum, en að láta
,á móti yður. Það var óneitanlega
nuðveldara, en drengilegra var það
■ekki. En eins og gengur þegar far-
ið er að horfa tilbaka, þá dregst mað-
ur líka tilbaka og svo fóruð þjer að
koma svo sjaldan á fundina sem hægt
var og mistuð svo allan áhuga á mál-
•efninu. En gætið vel að yður allir
þjer piltar og stúlkur, sem hafið byrj-
að að reyna þjóna guði hvort, heldur
sem þjer eruð í fjelaginu eða ekki,
gætið yðar að þið ekki farið að horfa
til baka, því þá er hættan svo mikil
að þið hverfið aptur út í sollinn
og missið svo yðar fyrsta kærleik,
smátt og smátt stirðnið upp og verð-
ið að andlegum saltstólpa einsogfór
fyrir konu Lots. Munið eptir því,
sem Jesú segir:
»Enginn sá, sem leggur hönd á
plóginn og horfir á ])að, sem er að
baki hans, er hæfur til guðs ríkis*
Lúk. g, 62.
-------- *T*--------
--------------------
Kveðja fpá Kaupmannahöfn
Vjer undirritaðir meðlimir í »kristi-
legu fjelagi ungra manna« i Khöfn. og
unglingadeild þess sendum hjer með
vorum ókunnu bræðrum í »kristilegu
unglingafjelagi« í Reykjavík og for-
stöðumanni þess, Fr. Fr., vora hjart-
anlegustu' kveðju í nafni frelsara yð-
ars og vors, Jesú Krists, með ósk og
bæn um trúfesti og sigur, svo að vjer,
eptir að vjer höfum fylgt Kristi hjer
í lífi, getum mætst með gleði á hægri
hlið við hásæti HANS! —
Sunnudagskvöldið þann 28. Jan. 1900
í Bethesda. —
(133 undirskriptir). —
<♦►
Frá fjelaginu.
Ú t i o g h e i m a.
t
Frá Danmörku hafa borizt þau
sorgartíðindi, að formaður hins
danska unglingasambands,
biskup V. Schousboe
sje dáinn. Hann vareinn afstofn-
endum fjelagsins í Kaupmannahöfn
og í 10 ár formaður þess, slðan
1 rnörg ár formaður sdanskasam-
bandsins« og meðlimur alþjóða-
nefndarinnar í Schweiz. —
I næsta blaði verður hans get-
ið nánar. —
♦-------
Fyrsta aprtl flytur fjelagið í Kaup-
mannahöfn inn í nýja húsið sitt í
Gothersgade 115. Það mun kosta
hjer um bil 6 hundruð þúsund krónur.
Guð blessi bræður vora þar í þess-
um riýja bústað og láti það vera mið-
depil kristilegrar hreyfingar, sem drægi
æ fieiri unga menn og unglinga til
Jesú. —