Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.06.1909, Qupperneq 2
42
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
I. ÁRG.
Hvítasunnusálmur.
Þú andi guðs lifandi lýstu vort hjarta
Með Ijósi og náð,
Að ratað vjer fáum í bjarmanum bjarta
Og blessum þitt ráð.
Þá glaðir vjer lítum í lifandi von
Frá dauðalands dölum
I dýrðlegum sölum
: | : Guðs signaða son. : | :
Ó kallaðu á æskuna, kærleikans andi,
Að koma nú skjótt
Til Jesú, að frelsist hjer lýður í landi
Og lifni við drótt,
Legg eld þeim í hjörtun og heilaga glóð
Af fjöri og funa,
Svo fram megi bruna
: | : Úr þokunni þjóð. : | :
Ó láttu’ oss svo aldrei af veginum víkja
Nje villast af leið
Og aldrei vort háleita hlutverkið svíkja,
Fótt herði’ að oss neyð,
En fyrir oss bliki þinn blóðdrifni kross
Á hæðunum háum,
Uns höndlað vjer fáum
: | : Hið himneska hnoss. : | :
Fr. Fr.
(Grein úr mánaðarblaöi K. F. U. M.
í Stokkliólmi skrifuð af
I)r. Kavl Friis).
Þannig stóð það nýlega lil
lestrar í dagblöðum (í Stock-
liólmi). Það var yfirskriftin
á frjettagreinum um umræðu-
fund, er haldinn var í »Folkels
Hus« í Stokkhólmi. Með eða
móti Kristi, þannig skiptist
mannfjöldinn ekki aðeins í
»Folkets Hus«, nei, hvervetna
þar sem menn kynnast nafni
Krists, þar kemur fram þessi
greining. Þannig var það, er
liann gekk um kring meðal
manna i fjallabygðum Judeu og
sljettunum í Galileu. Þannig
hefur það verið og þannig er
það enn. Kappræðan í »Folkets
Hus« er vitnisburður um sann-
leika þessa spádóms Jesú.
Þessi barátta um persónuhans
kemur lil af því að hann gjörir
hærri kröfur en nokkur annar.
»Jeg er vegurinn, sannleikurinn
og lífið, enginn kemur lil föðurs-
ins nema fyrir mig«. — »Sá
sem ann föður eða móður meir
en mjer, er mín ekki verður.« —
»Þannig gelur þá enginn af yður,
sem eigi sleppir öllu, sem liann
á, verið lærisveinn minn«.
Það er eigi undarlegt þótl bar-
átta komi með honum. Það er
engin furða þóll menn reyni að
brjóla broddinn af kröfum þess-
um með því að útskýra þau svo
eða svo. Og þó heldur hann á-
fram göngu sinni niður í gegn-
um aldirnar kyrlálur og mátt-
ugur og segir: »Fylg þú mjer!«
Ogá einum slað rís upp lærisveinn,
og á öðrum slað annar og