Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Qupperneq 3

Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Qupperneq 3
I. ÁRG. MÁNAÐARBLAÐ K. P. U. M. 91 hálfum mánuði liafði elzta dóttir frúarinnar sent mynd af litlu dóltur sinni og skrifað á liana: »Sigriður litla spyr einlægt, hve- nær eigi að fara af stað til ömmu til að sjá jólatrjeð með mörgu ljósunum«. Nú voru að eins fáar klulcku- stundir þangað til amma átti að fá að sjá Sigriðí litlu og all- an hópinn. Frúin fór ailt í einu að hugsa um myndina og mundi þá að hún lá í saumaskríninu á borð- inu. Hún opnaði skrínið og fann hana þegar í stað. Við hlið hennar lá önnur mynd gömul og gul. Sú mynd var líka af ungu Ijóshærðu stúlkubarni með djúp- bláu spyrjandi augnaráði og hálfopnum munni. Það var mynd af frúnni sjálfri. Hún horfði langa slundá hana og fleiri og fleiri minningar komu og liðu fram í röð fyrir hug- skotsaugum hennar, svo að tár eptir tár tók að falla niður elli- hrukkaðar kinnarnar. Hún minntist þess, að myndin var tekin, þegar hún enn gat nolið ástúðar föður og móður. Mikla baKiltu og margar sorg- ir hal'ði hún orðið að þola síð- an. En kærleika hafði liún fundið hjá þeim föður, er aldrei bregst, og hjá þeim manni, sem elskaði hana. En sú var tíðin að hún hafði gleymt liimna- föðurnum og þekkti enn ekki þann mann, sem varp liamingju yfir líf hennar. Mynd eftir mynd kom fram úr djúpi fortíðarinnar. Fyrir utan tjell fjúkið mjúkt og hvítt niður á svarta jörðina; inni fyrir logaði eldurinn í ofn- inum, dofnaði og varð að glæð- um, en allt af sat gamla frúin sokkin niður í æsku minningar sínar. Við skulum nú sjá nokkrar af þeirri minningafjöld. Hamingjusamt var lieimili það, sem Elsa litla, — það var skirnarnafn gömlu frúarinnar — ólst upp í »móðurfaðini við föðurmund«. Aldrei heyrði hún óvingjarnlegt orð; aldrei sá hún ó- lundarsvip. Ilún var einkabarn og báru hana allir á höndum sér, og liendi þurfti hún ekki að drepa í kalt valn svo að segja. Engin knldanæðingur mátti fá að blása á lillu fíngerðu jurtina; engin sólarbreiskja að svíða ungu hjartablöðin. Hún álti aðeins að sjá og þekkja liið sanna, hið rjetta og fagra. Bernskuheimili hennar var trúrækið heimili, þar sem hin unga móðir kenndi barni sinn snennna barnabænina, kenndi því að líta upp til hins mikla barnavinar með trú og trausti.

x

Mánaðarblað K.F.U.M.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.