Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Síða 14

Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Síða 14
102 MÁNAÐARBLAÐ K. E. U. M. í. ÁRG. og fjekk búið til marga fallega smáhluti. — Hann vann af miklu kappi og ástundun og hin fegursta framtíð virtist að brosa við honum. I5á bar svo við einn dag að hann fjekk tilboð um atvinnu á skipi einu, sem ætlaði að leggja út frá Kristjaníu næsta dag, á leið til Englands. Kyndarínn liafði orðið veikur og átti Ólaf- ur að koma í stað lians og svo eptir reynzlulíma að verða vjela- meistari. Ólafur tók glaður við þessu boði; honum virtisl þetta mundi verða braut til hamingju og gengis. Hann var búinn úl í í skyndi og svo kvaddi hann foreldra og vini, og lagði af slað út i lífið. Þetta varð hans fyrsta og síðasta sjóferð. Hann var ekki kominn langt út í Kristjaníu- fjörðinn er hann varð lasinn; fyrst hjelt hann að það aðeins væri sjóveiki, en eptir 3 daga var hann orðinn svo veikur, að hann gat ekki farið á fætur. Og þá fyrst fjekk hann að vita að kyndarinn, sem hann hafði kom- ið i staðinn fyrir, hafði sýkst af illkynjaðri taugaveiki. Og rekkja hans hafði án nokkurrar sótt- hreinsunar verið fengin Ólafi. Honum versnaði meir og meir og með köflum fjekk hann óráð. »Það er öldungis eins og á liin- um«, sagði skipssveinninn og þegar hann hafði sagl þetta, fundu skipsmenn fyrst til ábvrgð- ar sinnar. Þeir þorðu ekki að fara með liann yfir lil Englands, þess vegna fóru þeir með hann til Kristjánssands og lögðu hann inn á sjúkraliús. Læknirinn sem kom til hans hristi liöíuðið; það var vonsku- taugaveiki sem gekk að honum og svo var annar sjúkdómur í viðbót. Hann var því sendur á ríkisspítalann í Kristjaníu með járnbrautinni. Menn geta imyndað sjer sorg og angist foreldranna, er þau fengu son sinn sjúkan til baka eplir 5 daga burtveru. Hann þjáðisl nrjög; það var eins og hinn röski ungi maður visnaði i liöndunum á þeim. Hann nærðist mjög lítið og það litla sem hann tók til sin af fæðu kom ómelt. Læknirinn gat enga von gefið. Það voru þungir tímar fyrir foreldrana! Þau höfðu elskað drenginn sinn svo heitt. Einn fagran norgun í júlí einmitt þegar sólin sendi fyrstu geislana sina inn í sjúkrastofuna og fuglakvakið fyrir utan færði sól og sumri kvæði um lífið, þá nálgaðist dauðinn með liröðum skrefum. Það var sent boð eptir foreldrum hans, sem komu í mesta skyndi. Dauðastríð hans var stutt. En síðasta stundin var svo fögur og indæl. Þá liafði hann allt ráð og rænu,

x

Mánaðarblað K.F.U.M.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.