Ný kristileg smárit - 01.02.1893, Page 2

Ný kristileg smárit - 01.02.1893, Page 2
2 þeirri von og í því trausti, að þeim auðnist að vekja og glceða lcristilegar tilfinningar og hugarfar í hjört- um þeirra, sem pau lesa, og styðja þannig að því, að Guðs riki eflist og út hreiðist á meðal þjóðar vorrar. Góður Guö veiti til þess sína náð og blessun! Hallgrímur Svcinssou. Jesús frelsar synduga menn. Saga sú, sem hjer skal sögð, hófst 1863. Kristni- boði nokkur prjedikaði í litlu bænhúsi í Ato, sem liggur undir stórborgina Fuk-Choiv í Iíínaveldi. jpar bar að mann nokkurn, að nafni Ling Ching Ting, og var hann á fertugsaldri. Með því bænhúsið var opið, gekk hann þar inn, til að sjá, hvað urn væri að vera. Hlýddi hann um stund á prjedik- uniua, og fannst meira og meira um hana. |>egar samkoman var úti og fólk fór burtu, gekk hann upp að altarinu til kristniboðans og sagði við hann: »Sögðuð þjer ekki að þessi Jesús, sem jeg aldrei liefi áður heyrt nefndan og alls ekki þekki, — sögð- uð þjer ekki, að hann gæti frelsað mig frá öllum syndum mínum?« — »Jú, það sagði jeg«, mælti kristniboðinn. »En þjer þekktuð mig ekki, þegar þjer sögðuð þetta«, svaraði kínverjinn. »J>jer viss- uð ekki, að jeg hefi í mörg ár lifað við svall og spilamennsku, að jeg hefi farið með galdur, að jeg hefi framið saurlifnað, og að jeg f 20 ár hefi verið sokkinn niður í ópíumsreykingu, og það er alkunn- ugt, að eugum þeim er bata von, sem svo lengi hefir verið undir þá synd seldur. Ef þjer hefðuð vitað um allt þetta, heföuð þjer víst ekki sagt, að

x

Ný kristileg smárit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný kristileg smárit
https://timarit.is/publication/496

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.