Ný kristileg smárit - 01.04.1894, Qupperneq 13

Ný kristileg smárit - 01.04.1894, Qupperneq 13
53 »Fáðu mjer það, pabbi«, sagði jeg og ljet frá mjer orfið. »j?akka þjer fyrir, JÚ1ÍU3 minn, jeg veit að þú ert lúiun, og jeg hefði ekki farið að biðja þig um þetta, hefði jeg haft annan að senda, og jeg er ekki sjálfur vel frískur í dag, svo að jeg treysti mjer ekki til að ganga það«. Og svo klappaði hann á kollinn á mjer og sagði: »Vertu þá sœll á meðan, Júlli minn, þú hefir alltaf verið góður sonur«. Jeg var ekki lengi að ljúka erindinu, en þegar jeg kom heim, sá jeg strax að eitthvað hafði komið fyrir, fólkið stóð allt þegjandi og niðurlútt í hóp fyrir utan dyrnar, og jeg fjekk ekki að fara inn, en móðir mín kom út grátandi og tók mig afsíðis og sagði mjer, að faðir minn hefði dáið af slagi , rjett eptir að jeg fór. Orðin, sein liann talaði við mig, voru síðustu orð hans. Nú er jeg orðinn gamall og grár, eins og þið sjáið, börnin góð, en opt hefi jeg í huga mínurn þakkað Guði fyrir það, að síðustu orðin, sem faðir minn mælti við mig voru þessi: »J>ú hefir alltaf verið góður sonur«. Enginn maður iðrast þess nokkurn tíma, að hafa sýnt öðrum vinsemd og greiða. En það er hræðileg kvöl eptir á, að minnast þess, að hafa verið ónotalegur og vondur við þá, sem manni standa næstir. Hugsið um þetta, drengir mínir og stúlkur, verið ekki afundin og svörul við foreldra ykkar og syst- k kyni og aðra vandamenn. |>ið vitið ekki, hvað lengi þið fáið að halda þeim*.

x

Ný kristileg smárit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný kristileg smárit
https://timarit.is/publication/496

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.