Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.05.1926, Page 4
2
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
M. í Kaupmannahöfn. Harald Westergaard,
sem skrifað hefur þessa játningu, er pró-
fessor í þjóðmegunarfræði við Hafnarhá-
skóla, fæddur 19. apríl 1853, varð professor
1886; hefur skrifað margar vísindalegai' rit-
gjörðir í sinni grein; varð doctor 1902. Iief-
ur starfað mikið fyrir kristindómsmál, og er
í miklu áliti hjá öllum sem vísindamaður og
öruggur lærisveinn Jesú.
----o——-
Sumartíminn
er að byrja einnig í starfi K. F. U. M. Fund-
um innan dyra fækkar óðum, en starfið úti
kemur í þeirra stað. Nú byrjar jarðræktar-
vinna inni á landi voru rjett við þvottalaug-
arnar. þar er unnið á kvöldin tvisvar eða
þrisvar í viku og er gróðurstöðin að verða
mjög prýðileg. — þá fer og fótboltafjelagið
„Valur“ að fara á kreik með æfingastarf sitt,
og vonum vjer eptir góðum árangri af því
starfi. Ennfremur fara menn að hugsa fyr-
ir útiverum og taka sig saman um að dvelja
sumarleyfi sitt í Vatnaskógi eða Kaldárseli.
— það verða gleðilegir tímar fyrir þá, sem
fá að njóta þess.— Nú verða allar greinar
fjelagsins að gjöra sitt ýtrasta og allir ættu
að vinna með atorku og áhuga. — Menn ættu
ekki að setja sig úr færi með að fjölmenna
inn í gróðrarstöð vora, þau kvöld sem unnið
er þar. það er slík hressing og nautn, að
vinna þar saman og vera saman, og sá sem
ekki hefur reynt það, getur ekki rent grun
í það. A-D-menn komi inneptir á fimtudags-
kvöldum; U-D-piltar á miðvikudögum. Gæit-
ið vel að hinum sjerstöku auglýsingum í
dagblaðinu ,,Vísi“, og enginn fjelagsmaður
láti þær fara framhjá sjer.
Látum oss, bræður, vera samtaka að sum-
arstarfið verði gagnsamlegt og fjelaginu til
sóma.
----o----
Biblíulestrar.
Sjerhver kristinn maður tekur sjer dag-
lega einhverja stund til biblíulesturs. Hann
tekur þá biblíuna sína eða nýjatestamentið
og les einhvern kafla eptir því sem tími hans
leyfir. Slík stund er blessunarstund dagsins.
Sje hægt, er bezt að hafa allt af sömu stund-
ina til þess, annars verður hver að haga þvi
eins og hann bezt getur. — En þrátt fyrir
þetta er það samt mjög nytsamt að koma
saman og lesa biblíuna saman. þessvegna
hefur og í K. F. U. M. sjerstakt kvöld verið
helgað slíkum sameiginlegum biblíulestri.
það er áreiðanlegt að margt gott hefur
styrkst við slíka samlestra. þeir sem stöðug-
lega taka þátt í þeim, komast nær hver öðr-
um. Guðsorðið gefur tilefni til margra hug-
leiðinga og einn kemur með þetta annar með
hitt; þannig auðga þátttakendurnir hver
annan. Menn vita ekki hve mikils þeir fara
á mis með því að taka ekki þátt í slíkum
áframhaldandi samlestrum. það þyrftu helzt
að vera margir flokkar innan fjelags, sem
hefðu með sjer slíkar samlestrarstundir.
það er betra að flokkarnir sjeu fámennir.
þeir sem vildu stofna slíkan flokk með 3—5
mönnum, gætu t. d. haft þá á víxl hver heima
hjá öðrum, þeir er hefðu húsakynni til þess.
— Sem stendur er einn biblíulestrarflokkur
haldinn í fjelagshúsinu, á hverju þriðjudags-
kvöldi. — Allir meðlimir Aðaldeildarinnar
eru velkomnir.
o
Á fórnarfundunum: þ. 1. apríl komu inn
í byggingarsjóð kr. 130,00 og þ. 4. s. m.
komu inn í byggingarsjóð kr. 77,50. Sam-
tals í apríl kr. 207,50.
Fermingarhátíðir verða haldnar í K. F.
U. M. þ. 5. maí og K. F. U. K. þ. 7. mai.