Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.05.1926, Blaðsíða 10
8
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
Sedrik hafði enga hugmynd um þessa at-
hygli og kom hann því fram eins og honum
var lagið. Hann rjetti hr. Havisham vin-
gjarnlega höndina, þegar hann var kynntur
honum, og leysti úr öllum spurningum hans
eins óþvingað og hiklaust eins og þá er hann
átti tal við Hobbs. Hann var hvorki einurð-
arlaus nje framur, og þegar hr. Havisham
var að tala við móður hans, tók lögmaðurinn
eptir því að drengurinn hlustaði á samtalið
með mikilli athygli eins og hann væri fulltíða
maður.
„Hann virðist að vera sjerlega bráðþroska“
sagði hr. Havisham eitt sinn við móður hans.
„Já, jeg held að hann sje það í sumu“,
svaraði hún. „Hann hefur allt af verið fljót-
ur að læra og hefur mestmegnis umgengizt
fullorðið fólk. Ilann hefur þann skringilega
vana að nota löng orð og orðatiltæki, sem
hann hefur lesið eða heyrt aðra nota, en hann
er líka mjög fýkinn í alla barnaleiki. Jeg
held að hann sje allvel gáfaður, en hann er
líka mjög unggæðingslegur stundum, eins og
drengjum er títt“.
Næsta skipti, þegar hr. Havisham sá hann,
varð hann að viðurkenna að það væri satt.
Um leið og vagninn hans beygði fyrir hornið
inn í götuna, kom hann auga á hóp af litl-
um drengjum, og var þeim auðsýnilega mikið
niðri fyrir. Tveir af þeim voru rjett að því
komnir að fara í kapphlaup. Annar þeirra
var ungi lávarðurinn hans; hann var að
hrópa og hafði eins hátt og hinn hávnða-
samasti í öllum flokknum. Hann stóð við
hliðina á öðrum dreng og hafði sett annan
rauðsokkaða fótinn fram til taks.
„Einn, — til að vara!“ öskraði hlaupstjóri.
„Tveir, — til að fara! — þrír — og af stað!“
Hr.Havisham hallaði sjer út um vagnglugg-
ann með óvanalegum áhuga. Hann mundi
ekki eptir að hafa sjeð nokkuð svipað því,
hvemig hinir eðalbomu litlu rauðklæddu
fótleggir litla lávarðarins flugu upp svo ótt
og títt á bak við stuttbuxumar og þeyttust
yfir sikeiðvöllinn í kapphlaupinu. Ilann
kreppti hnefana og hljóp háleitur, en gló-
bjart hárið kembdi aptur af honum.
„Húrra! Seddi Errol!“ hrópuðu drengirnir
og hoppuðu og æptu í ákafa. „Húrra! Villi
Williams, húrra, Seddi; húrra Villi, húrra!“
„Jeg held að hann ætli að vinna“, sagði hr.
Havisham við sjálfan sig. Allt þetta, —
rauðu, litlu fótleggimir, sem flugu og leypr-
uðu ótt og títt, upp og niður, óp drengjanna,
ákefðin og kappið í litla Villa Williams, sem
t.ifaði í mórauðu sokkunum sínum rjett á
eptir rauðu fótleggjunum, — allt þetta kom
gamla lögfræðingnum í óvanalega geðshrær-
ingu. „Mjer liggur við, jeg get ekki að því
gert, að jeg vona, að hann vinni“, sagði hann
eins og í afsökunarsikyni við sjálfan sig.
I þessu augnabliki stigu upp hin æztustu
óp frá öllum hinum dansandi og hoppandi
drengjaskara. Með hinni síðustu hamstola
áreynslu hafði hinn tilvonandi jarl á Dorin-
court náð götuljósstólpanum á horninu og
snert hann, rjettum tveim sekundum áður en
Villi snaraði sjer másandi og blásandi að
stólpanum.
....o-----
Fundarefni fyrir Maí.
í. K. F. U. M., Reykiavík.
2. Sunnud. Sjcra Bjarní Jónsson talar.
9. - „ - Sjera Árni Sigurðsson talar.
1B. Uppstin-ningardag. Fundur.
16. Sunnud. Almenn samkorna.
2?.. Hvitasunna. Cand. theol. S. Á. Gislason talar.
30. Sunnud. Sjera Fr. Hallgrimsson talar.
Á hverjum rúmhelgum fímtudegi jarðræktarvinna
kl. 8 siðdegis.
Bibliulestur á þriðjudagskvöldum kl. 81/2.
Fundir i yngri deildunum leggjast niður.
II. K. F. U. K., Rvík.
Saumafundir á þriðjudagskvöldum kl. 8>/2.
Aðrir fundir leggjast níður.
Mánaðarblað K. F. U. M. kemur út einu sinni í mánuði. Kostar 2,50, aur. árg Upplag 3000 eintök.
Afgr. i húsi K. F. U. M., Amtmannsstig. Afgreiðslum.: Ingvar Arnasson. Utg.: K. F. U. M. Prentsm. Ácta.