Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1926, Blaðsíða 4

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1926, Blaðsíða 4
2 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. eru hlaðnir mannkostum og dyggðum, svo allir lofa þá, en innst inni finna þeir hve götugt og fánýtt allt þetta er, því þeir þekkja sjálfa sig og vita, að allir þeirra kostir hafa aðeins gildi fyrir mönnum, en ekki fyrir þeim sjálfum. f sál sinni eru þeir friðlausir menn. En auðurinn í Guði gefur þeim, sem eiga hann, frið og ánægju. Og þeir vita að auður stendur föstum fótum bæði hjer í lífi og eptir þetta. Þau gæði, sem þeir eiga hjer, eru fullvissan um að vera guðsbörn, frels- uð af náð, ekki vegna verðleika, ekki vegna mannkosta, ekki vegna dyggða sinna, heldur vegna kærleika Guðs, í Jesú Kristi, vegna fórnardauða hans á krossinum. Þau eiga þar með þau gæði að geta sagt A b b a, f a ð i r, og þannig í fullu trúnaðartrausti komið fram i'yrir hann á hverri tíð, með stórt og smátt. Þetta er sá mikli auður guðsbarna. Ekkert getur skert þenna auð. f mótlæti og sjúk- dómi og sorg verður hann enn virkilegri og skapar í sálunni hina varanlegustu sælu. — Sælir eru þeir, sem eiga þenna auð. Þeir hafa ráð á að vera ánægðir og glaðir mitt í allri annari fátækt, og þessi auður gefur öllum öðrum auð eilífðarinnihald og gjöiir hann að virkilegum gæðum, er leiða af sjer blessun á jörð. Átt þú þenna auð ? Ef svo er ekki, þá snúðu þjer til Guðs og gáttu honum á hönd af öllu hjarta, þá eignast þú hann. Sumarlífið í K. F. U. M. í Júlí var stofnað til sumarveru í Vatna- skógi. Var lagt af stað þriðjudag þ. 20. með mótorbátnum „Óðinn“. Veður var ekki hið bezta, rigning talsverð og hvasst með köfl- um. Það var því ekki hægt að lenda við Saurbæ, heldur varð að fara inn að Hrafn- eyri, og ganga þaðan út í skóg. Það bætti mjög úr að 5 piltar voru komnir á undan fyrir nokkrum dögum og höfðu sett upp tjöldin og búið allt í haginn. Þessi flokkur var nokkumveginn heppinn með veðrið, enda þótt það væri í vætutíðinni. Daginn eptir komuna þangað var sæmilegt veður og skemmtu menn sjer hið bezta. Á fimtudag og föstudag var líka mjög fagurt veður, sól- skín og sumarsæla. Á föstudag var farið upp á Skarðsheiði og var þá vel bjart og útsýni mikið og fagurt. Blasti þar við sjónum manna allt hið fagra Borgarfjarðarundir- lendi og þar fyrir ofan hinn tignarlegi jöklahringur í allri sinni stórfenglegu feg- urð. Á hinn bóginn mátti sjá Reykjavík og langt suður eptir Reykjanesskaganum. Það var ógleymanleg sjón þeim, er það sáu. Á laugardag og sunnudag var talsverð rigning. Á sunnudaginn var farið til kirkju að Saur- bæ. — Og um kvöldið var hátíðleg samveru- stund heima í tjaldinu. Það var síðasta kvöld- ið, sem flokkurinn var uppfrá og þótti mönn- um tíminn hafa liðið helzt til fljótt. Á mánu- daginn var mikil rigning og gjörði hún erfitt fyrir að taka sig upp. Þó var það auðveld- ara af því að ekki þurfti að taka saman tjöldin, því nýr flokkur átti að koma sama dag. — Mættust flokkarnir í • lendingunni á Saurbæ. Með „Óðni“ komu upp eptir 25 skát- ar til þess að vera næstu viku í skóginum. Þrír urðu eptir úr fyrri flokknum, síðan bættust tveir við úr Reykjavík er komu landveg og 5 skátar frá Akranesi. Var þetta stærsti flokkur, sem hefur verið upp frá. — Óveður hjelzt nær alla vikuna, stórfeldar rigningar og hrakveður. Rann allt út í vatni, lækir mynduðust á mörgum stöðum, og vatn- ið í Eyrarvatni hækkaði um liðugan meter. En þrátt fyrir allt þetta voru menn ekki hnuggnir. Gleði og gaman og ágætt samstarf átti sjer stað. 8 af þeim stærri tóku sjer gönguferð norður í Skoradal þrátt fyrir óveðrið og komust alla leið að Hesti allir rennblautir. Tók sjera Eiríkur Albertsson við þeim mæta vel og voru þar um nóttina í góðu yfirlæti; fylgdi prestur þeim næsta dag alla leið yfir Dragháls og hestaði þá alla. — Gott er oss nágrennið hið efra; urð- um vjer fyrir mikilli gestrisni og góðvild bæði á Geitabergi og Saurbæ. Við Saurbæ eru knýttar mestar minningar utan Vatnaskógs

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.