Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1926, Blaðsíða 5

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1926, Blaðsíða 5
3 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. hið efra. Þar er vor kirkjustaður, og- þangað höfum vjer sótt bæði andleg og' tímanleg gæði. Vilja prófastshj ónin oss allt til góðs gera, bæði í hestalánum og öðrum viðskipt- um. — Sunnudaginn 1. Ágúst var burtfarar- dagur vor. Var bá nær allan daginn stór- rigning. Voru flestir blautir er niður að Saurbæ kom. Það átti ekki að messa þar þann dag. En með því komu bátsins dvaldi, þá fengum vjer stutta guðsþjónustu og var það gleðirík stund í kirkju Hallgríms Pjet- urssonar. Á meðan kom báturinn og var síð- an gengið úr kirkju til strandar og haldið heimleiðis. Veður var þá orðið þurt og gott og hjelzt alla leið út Hvalfjörð. En síðan kom versta úrviður á móti oss, er fyrir Kjal- arnes kom. En gleðisöngvar hljómuðu samt alla leiðina frá hinum káta og röska sveina- hóp, sem þótti- t þrátt fyrir allt hafa farið góða og minnisstæða för. — Vegna bleytunn- ar og rigningarinnar urðum vjer að láta tjöldin standa uppi og skilja þau eptir. — En næsta sunnudag fór dálítill hópur upp í skóg, og leigðum vjer til fararinnar ,,Óðinn“. Þá var veður hið bezta og fagurt mjög. Vjer komum að Saurbæ rjett fyrir messubyrjun. Af því að svo lengi höfðu verið óþurkar og töður manna legið undir skemmdum, hjeld- um vjer að engin messa yrði vegna þurks- ins þann dag. En það fór nú öðru vísi. Það kom margt fólk og bar sjerstaklega á unga íólkinu í kirkjunni. Fengum vjer þar inn- dæla messu og- mjög uppbyggilega og góða predikum hjá prófastinum. Síðan fórum vjer upp í skóg og skemmtum osis svo lengi, er vjer máttum; tókum síðan saman tjöldin og komum öllu í lag; og höfðum svo beztu heimför. — K. F. U. M. í öðrum löndum. Afríka: f blaðinu „The South African Out- look“ stendur þessi grein: „Mjög merkileg athöfn fór fram nýlega í Bloemfontein. Bæjarstjórnin höfir gefið grunn í hjarta bæjarinisi og veitt 1200 pd. St. til þess að reisa K. F. U. M.-byggingu fyrir Bantu-negra, fyrsta Bantunegrafjelag í Suður-Afríku. Mikill mannfjöldi var saman kominn, er homsteinninn var lagður. Biskup- inn; í Bloemfontein stjómaði athöfninni og borgarstjóri Dr. Steyn lagði hornsteininn. Þegar húsið er uppkomið tekur K. F. U. M. við því til eignar og viðhalds. Þetta er stór atburður og þýðingarmikill fyrir Bantu- æskulýðinn. Og þetta verður sjálfsagt til eptirdæmis á mörgum stöðum. Framkvæmd- arstjóri Bantufjelagsins heitir Geddes T. Nolutschungu. Blaðið óskar honum og fje- lögum hans hjartanlega til hamingjut Ameríka: f vor var stofnað nýtt K. F. U. M. á Nýfundnalandi (Newfoundland). Ilinu nýstofnaða fjelagi var boðið húsnæði í hinu mikla húsi „Sjómannastofu Georgs konungs V.“. Lautinant Richard Evelin Bird, sem flaug yfir Norðurheimskautið, hefur lengi verið starfandi maður í K. F. U. M. Hr. J. Daniels, fyrverandi sjómálaráðherra Bandaríkjanna iskýrði frá því nýlega í ræðu fyrir hr. Bird, að hann hefði orðið undrandi á því fyrir nokkrum árum að hitta ungan sjóliðsforingja sem stjórnanda biblíulestrarflokks í fjelag- inu í Brooklyn, og það væri hinn sami sem nú væri frægur orðinn fyrir heimskautaflug sitt. — 1 ' Asía: í Japan hefur K. F. U. M. mikið verk og breiðist mjög út. Flestir fram- kvæmdarstjórarnir eru háskólagengnir menn. Það er mikill kraptur í starfinu og alvara, sem dregur að sjer marga meðal ungra heiðingja. Einn af beztu mönnum hinnar kristlegu æskuhreyfingar í Japan heitir S. Saito og hefur hann í vetur verið kjörinn einn af aðalframkvæmdarstjórum Veraldar- sambandsins í Sveizz.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.