Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.11.1929, Síða 9
MANAÐARBLAÐ K. F. U. M.
7
Fundir og samkomur
í Nóvembermánuði.
K. F. U. M.
A-D fundir á fimmtudagskvöldum kl. 8J4.
7. Nóv. Ingvar Árnason stjórnar fundin-
um. Sjera Ámi Sigurðsson flytur erindi:
„Feður og synir“.
14. Nóv. Bænavikusamkoma.
21. Nóv. Ólafur Ásgeirsson stjómar fund-
inum. Sigurður Guðjónsson kennari: Fram-
hald ferðasögu um Norðurlönd.
28. Nóv. Inntaka nýrra meðlima. Kynn-
ingarsamvera. Kaffi.
Almennar samkomur
miðvikudagskvöld kl. 8l/2.
6. Nóv. Sjera Bjarni Jónsson talar.
13. Nóv. Bænavikusamkoma.
20. Nóv. Sjera Þórður Ólafsson talar.
27. Nóv. Sjera Þorsteinn Briem talar.
Fundaiefni K. F. U. K. í Nóv.
1. Nóv. Sjera Þórður Ólafsson talar.
8. Nóv. Fermingarstúlknakvöld.
15. Nóv. Bænavikan.
22. Nóv. Útbreiðslufundur. Boðið náms-
meyjum og öðrum ungum stúlkum.
29. Nóv. Kaffikvöld.
Kæru fjelagssystur!
Styðjið starfsemina með fyrirbæn yðar og
nærveru á fundum. Leitist við að leiða ung-
ar stúlkur í hóp vorn svo að þeim gefist
kostur á að kynnast starfsemi K. F. U. K.
Með vinarkveðju.
. Stjórnin
Fundarefni Y-D K. F. U. K. í Nóv.
5. Nóv. Frú Bentína Hallgrímsson les upp.
12. Nóv. Enginn fundur (Bænavikan).
19. Nóv. Sýndar skuggamyndir.
26. Nóv. Saumafundur.
Kæru fjelagssystur í Y-D!
Gleðjið oss með nærveru yðar á fundum
vorum. Prýðið fundina með ungum andlit-
um!
Með vinarkveðju
Stjómin.
----o----
H J A RTA
Hjúkrunarmaðurinn hans pabba.
(Mánaðarsagan).
Morgun einn í marz, í rigningarveðri, kom
drengur einn, búinn eins og sveitadrengur,
votur og forugur til dyravarðarins í sjúkra-
húsi einu í Napoli. Hann tók fram brjef og
spurði eptir föður sínum. Hann var laglegur,
fölleitur og nokkuð mórauður að yfirlitum,
með skýr og stillileg augu, þykkar varir,
sem allt af stóðu hálf opnar, svo að röðin af
mjallahvítum tönnum kom í ljós. Ilann kom
frá þorpi einu í nánd við Napólí.
Faðir hans hafði fyrir ári síðan farið til
Frakklands til þess að leita þar atvinnu, en
var nú kominn aptur til Italíu; hafði fyrir
fáum dögum síðan komið í land í Napolí, en
crðið svo skyndilega veikur, að hann rjett
aðeins hafði haft tíma til að skrifa nokkrar
línur heim til sín til þess að láta fólk sitt
vita að hann lægi veikur á þessu sjúkrahúsi.
Kona hans hafði orðið utan við sig af sorg
af þessum frjettum, en af því að hún varð
að vera yfir veiku barni sínu og gat því ekki
farið sjálf,' hafði hún sent elzta drenginn
sinn til Napólí með fáeina aura til að hjálpa
föður sínum. Drengurinn hafði gengið 10 míl-
ur um nóttina. Frá þessu öllu sagði drengur-
inn og dyravörðurinn leit á brjefið og kallaði
á hjúkrunarmann og bað hann að fylgja
drengnum á fund föður hans.
„Og hver er faðir hans?“ spurði hjúkrun-
armaðurinn. Drengurinn titraði af ótta við
þá hugsun að fá slæmar frjettir, og sagði
nafn hans.
Hjúkrunarmaðurinn gat ekki munað eptir
neinu slíku nafni.