Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.11.1929, Blaðsíða 10

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.11.1929, Blaðsíða 10
8 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. „Var það gamall vérkamaður kominn frá utlöndum ?“. spurði hann. „Já, verkamaður“, sagði drengurinn ennþá órórri, „ekki svo sjerlega gamall, og hann kom frá útlöndum". „Hvenær kom hann á sjúkrahúsið ?“ spurði h j úkrunarmaðurinn. Drengurinn leit á brjef sitt og sagði: „Jeg held fyrir fimm dögum síðan“. Hjúkrunarmaðurinn hugsaði sig um. Allt í einu sagði hann eins og hann áttaði sig. á þessu: „Ó, hann er í innsta rúminu á fjórðu stofu“. „Er hann mjög veikur? Hvernig líður hon- um?“ spurði drengurinn ángistarfullur. Hjúkrunarmaðurinn leit á drenginn án þess að svara. Síðan sagði hann: „Komdu með mjer“. Þeir gengu síðan upp tvo stiga og svo ept- ir löngum gangi og komu að stórum sjúkra- sal með tveim röðum af rúmum. „Komdu með mjer!“ sagði hjúkrunarmað- urinn aptur og gekk inn í salinn. Drengur- inn herti upp hugann og fór inn á eptir hon- um, en leit með hræðslublöndnu augnaráði kringum sig á þessar raðir af veikum mönn- um. Sumir höfðu augun lokuð og voru fölir eins og nár; sumir störðu út í loptið og sum- ir stundu og hálf veinuðu. Það var hálf dimmt í þessum stóra sal og loptið var þrungið af meðalalykt og karbóleim. Tvær líknarsystui' voru á gangi um kring með meðalaglös í höndunum. Þegar þeir voru komnir innét inn í hinn langa sal, gekk hjúkrunarmaðurinn að innsta rúminu, dró sparlökin frá og sagði: „Iljerna er faðir þinn!“ Drengurinn fór að gráta og ljet böggulinn sinn, er hann bar undir hendinni, detta. Hann hallaði höfði sínu á öxl sjúklingsins og tók með annari hendinni um arm hans, er lá máttlaus ofan á ábreiðunni. Veiki maðurinn hreyfði sig ekki. Drengurinn reis á fætur og leit á föður sinn, og fjekk nú grátkast að nýju. Þá Ijet sjúklingurinn augun hvíla á hon- um, og virtist að þekkja hann. En varirnar bærðust ekki. „Aumingja pabbi, ósköp er hann breytt- ur!“ hugsaði drengurinn. Hann gat varla þekkt hann. Hárið var orðið nær hvítt, and- litið var þrútið og með blárauðum blæ og húðin sljett og glansandi, varirnar mjög þykkar og hann var orðinn skeggjaður. Allt útlit hans var gjörbreytt. Það var ekkert lengur svipað honum, nema ennið og auga- brýrnar. Hann dró andann þungt og með erfiðleikum. „Babbi, babbi!“ (svo var drengurinn van- ur að kalla hann), „þekkirðu mig ekki? Það er jeg, hann Sezilio þinn, sem er kominn að heiman að vitja um þig. Mamma sendi mig. Líttu vel á mig! Þekkir þú mig ekki! Ó, segðu eitt orð við mig“. En veiki maðurinn lokaði augunum eptir að hafa litið á hann. „Babbi, babbi! Iívað gengur að þjer? Jeg er hann litli sonur þinn, hann Sezilió þinn!“ En veiki maðurinn hreyfði sig ekki og átti erfitt með andardráttinn. Þá settist drengurinn á stól við rúmið og beið og beið, án þess að líta af föður sínum. Hann hugsaði með sjer. „Það hlýtur einhver læknir að koma og líta til sjúklinganna. iLann getur víst gefið mjer upplýsingar“. Nú sökk hann niður í þungar hugsanir. Iíann hugsaði um liðna tímann, þegar faðir hans, sem honum þótti svo vænt um, lagði af stað til útlanda, og hann hugsaði um, hve þungt hefði verið fyrir þau mæðginin að kveðja hann, er hann stje á skip. Hann hugs- aði um vonirnar sem knýttar voru við þessa ferð, og hina óþreyjufullu bið eptir brjef- um. Síðan fór hann að hugsa um dauðann. MánaöarblaO K. F. U. M. kemur út einu sinni í mánuöi. Kostar kr. 2,50 árg. Afgr.stofa í húsi K. F. U. M., Amtmannsstig, opin virka daga kl. 5—7. Sími 437. Pósth. 3G6. Útgefandi: K. F. U. M. — Prentam. Acta.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.