Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Blaðsíða 7

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Blaðsíða 7
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. þeir verða í hendi hars að verkfterum hins sanna kærleika, hins sanna fiiðar. Þe'r und- irbúa nú þegar hina knmandi friðaröld. Nú verða þeir að sýnast lúta í lægra haldi, nú verða þeir fyrir hinni sömu fyrirlitningu og hann varð að þola, og verður enn að þola af liinum fráfallna drembiláta heimi, en þeir vinna með honum látlaust og sífellt, cg þeir lcipþa sjer ekki upp við það, að þeir sjeu lítilsvirtir og smánaðir vegna hans nafns. Hinir sönnu játendur hans fylgja honum, þeir vitna um hann bæði leynt og Ijóst, þeii' kalla menn til apturhvarfs og skammast sín ekki fyrir fagnaðarerindi hans, sem er kraptur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir á hann. Þeir vitna um guðdóm hans þótt að þeim sje hlegið; Joeir vitna um starf hans, því að hann starfar í þeim; þeir vitna um chrni hans, því að þeir vita að Grð himnanna hefur lagt allan dóm í hans hönd; fyrir vitn- isburð þeirra gefur hann líf þeim, senv til hans koma, gefur þeim vísdóm til að heiðra soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Þann’g starfar hann í sinni heilögu kirkju, þar sem verki hans er gaumur gefinn. Hann vekur upp lífsöldur í kirkju sinni, sem safna hin- nm lifandi trúuðu til samstarfs og dáða. Hann sendir út boðbera sína til hrnna ungu, þeirra sem hafa framtíðina í fylgd við sig. Þeir vinna að því að ná éinurn* og einum til þess að aðhyllast Jesúm Kiist og fylgja honum. Ilann starfar í þeim að viðreisn friðarins. Hann safnar þeim rngu í fjelagsheildir sem eru í bandalagi um l'eim allan. Hann hleypti af stað K. F. U. M. og K. F. U. K. og eflir samstarf sitt í þeim, svo að tala hinna sönnu játenda Jesiá vex, er einn og einn vinnast fyrir það samstarf. Á hverju ári í nóvember kemur stór skari af hinu trúaða fjelagsfólki saman fram fyrir auglit Guðs til þess aðbiðja samhuga og samtaka um í-ama efni með eitt í huga og eina sál. I öllum löndum, á öllum tungumálum er beðið sömu bænanna, og menn biðja hver fyrir öðrum. Við það vex samein- ing hinna sönnu lærisveina um heim allan; þjcðir kynnast þannig og fá friðarhug og kærleiksþokka til framandi þjóða. Á þessari bænaviku er nafn Islands nefnt á flestum tungumálum heimsins og beðið fyrir því, og málefni guðsríkis meðal æskulýðs Islands. All ir sannir játendur Krists um allan heim í cll- um kirkjunnar de ldum starfa þannig meo Jesú Kristi að hinum endilegu úrslitum í bar- áttunni við öfl syndar og dauða. Þannig starf- ar Jesús allt til Jjessa, því að hann gengur um kring til þess að vekja liina dauðu til lífs. hina andlega dauðu, svo að þeir komist til trúarinnar á hann og starfi svo með honum að frelsun heimsins. En allir þeir, sem trúa á hann fá nýjan þrótt til þess að lifa rjett og breyta rjett; þeir fá nýjan þrótt til þess að yfirvinna sjálfa sig og freistingar sínar cg þeir taka meiri og meiri framiörum í öllu því, sem satt er og sómasamlegt, í öllu því, sein gott er og göfugt. Og það sem albr trúaðir keppa að er þetta, sem postulinn Páll segir, að fyllast þekkingunni á vilja hans með alls- konar speki og andlegum skilningi og styrkt'r með hverskonar mætti dýrðar Guðs. Til þessa samfjelags við sig kallar hann og alla, sem þetta lesa. Hann er sannnr Guð og Drottinn vor. IJann hefur fórnað sjer fyrir oss og fórn- ar sjer ennþá. Hann vill ekki dauða synd- arans, heldur að hver og einn lifi í heilag- leik og samfjelagi við hinn lifanda Guð, og svo marga, sem faðirinn himneski fær að gjöra hæfa til þess að fá hlutdeild í arfleifö heilagra í ljcsinu, alla þá, sem hann hefur hrifið frá valdi myrkursins og flutt inn í ííki síns elskaða sonar, alla þá mun hann og styrkja og staðfasta gjöra og leiða þá að lok- um inn í dýrðarríki sitt á himni. En hjer vill hann að vjer verðum samstarfendur sínir til þess að undirbvia þann frið á jörð, sem upp inun renna við endurkomu hans, en honum, hinum eilífa Guðssyni sje lof og vegsemd og dýrð um aldir alda. Amen. -----•> <*> <•—-

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.