Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Blaðsíða 8

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Blaðsíða 8
6 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. Hversve^na að fresta? . Opt undrast jeg1 það, hversu margir þeir erú, sem fresta að taka ákvörðunina um að lifa lífi sínu algjöríega með Guði. Væri það eitthvað illt eða varhugavert, að verða krist- inn í anda og sannleika, þá gæti jeg skilið að menn kveinkuðu sjer við því, en af því að jeg veit, að það er raunverulega þýðingar- mesta ákvörðunin, sem vjer getum tekið, þá undrast jeg þetta. Og allir þeir, sem hafa hikað og slegið því á frest, en með Guðs hjálp hafa þó tekið ákvörðunina að lokum, iðrast eptir að hafa dregið það svo lengi og lifað mörg dýrmæt ár án lífssamfjelagsins við Guð. Sumir álíta að það, að verða ákvcðinn krist- inn maður, sje sama sem rofið samband við ættingja og vini, og það er mjög viðkvæmt atriði. Aðrir einblína á kristnilífið sem sí- felda sjálfsafneitun og- baráttu, svo að menn verði svo að segja að segja skilið við heim- inn, sem við lifum í. Ef menn líta þannig, að óreyndu og fyrir- fram, á það að vera kristinn, þá vakna margs- konar ískyggilegar hugsanir, þar á meðal, ef til vill, sú hugsun, að þrekið bresti til að geta staðið stöðugur í trúnni, og þá sje betra að byrja ekki á því. 1 En til þessa er því að svara, að allt verð- ur mjög mikið öðruvísi, ef maður aðeins gef- ur sig Guði. Þá gjörbreytast skoðanir manna á öllum hlutum og Guð gefur oss krapt til að lifa hvern daginn eptir því, hvernig hann reynist. Það, að eiga meðvitundina um, að syndin er afmáð og að hún fyrirdæmir oss aldrei framar; að vjer erum orðin Guðs börn og' fáum að sjá dýrð Jesú, mun fylla oss stöð- ugri unclrun og' gleði yfir því, að vjer skyld- um verða aðnjótandi slíkrar hamingju. Líf vort á æsku- og manndómsárunum get- ur með engu móti orðið auðugra og þrótt- meira en í samfjelagi við Jesú. í>á getur það ekki verið líf til einskis, svo að vjer við lok þess kveinum yfir því og óskum að við gæt- um lifað það upp aptur. En þá þökkum vjer Guði og lofum hann fyrir hvern liðinn og komandi dag. En bylting- þessi í lífi voru veldur sárs- auka, er vjer aíhendum oss Guði og tökum á móti náð hans alg'jörlega óverðskuldað, og verðum að gjöra það öllum kunnugt, að vjer höfum tekið þessa ákvörðun. En það er undravert, hversu Guð gjörir oss, einnig þetta, miklu auðveldara en vjer höfð m búi-'.t við og óttast áður. Ert þú einn af þeim, sem »lítið vanlar á« að sjert orðinn kristinn, og sem Jesús segir um, að sjeu nálægt Guðs ríki. Lát þú ekH þar staðar numið, heldur vertu heilhuga krist- inn og taktu skrefið alveg' inn í Guðs ríki. Þá mun reynsla þín verða hin sama og allra annara sannkristinna manna: Það var miklu meiri hamingja en mjer hafði komið til hug- ar. — (K. 0. Kornelius.) S. ---• -ÍCAC- •- Plástur eða hnífur. Á miklu stúdentamóti, sem haldið var í Edinborg á Skotlandi 1933, var prófessor einum í skurðlækningum falið að bjóða gesti mótsins velkomna, í nafni háskólans jjar. 1 þeirri ræðu sinni lagði hann sjerstaka áherslu á, að fyrrum hefðu menn reynt að lækna mein mannanna með plástrum cg kvalastöðvandi lyfjum, en nú væri talið óhjn- kvæmilegt að nota hnífinn til þess að skeru í burtu meinsemdirnar, svo að Hffærin öll yrðu heilbrigð. Það er full ástæða til að athuga, hvoit þessi orð eiga ekki erindi til allra trúaðra manna nú á tímum; hvort þau eru ekki eins og töluð til einstaklinga og fjelaga, sem starfa að útbreiðslu guðsríkis. Trúaður maður kemst ekki hjá því aó spyrja sjálfan sig, öðru hvoru: Hvers vegna kveikir eldur sá, sem í mjer á að loga, sem

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.