Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1938, Síða 8

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1938, Síða 8
30 MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. B æ n: »Drottinn vor Guð, konungur alls, sem er, Fram fyrir þig vjer berum oss að nýju Með öllu sem vjer höfum og erum, Drottinn, þiggðu þessa vora fórnargjörð, Helga ossi með anda þínum að vjer megum rjettilega nota krapta vora og gjafir, Tíma vorn og allt, sem vort er, í þjónustu þína. Amen«. Fyrirbæn: Indlandseyjar og Á,stralía. FÖSTUDAGUR 18. NÖV. 1 honum (Kristi) er hvorki Gyðingur nje grískur. Gal. 1, 28. »1 honum« .... Til er sú eining, sem brúar hverja jarðneska greining: Kynþætti, stjettir og kyn. »Því að hann er vor friður; hann hefur sameinað hvoratveggja og rifið niður millivegginn, sem skildi þá, að«. (Ef. 2, 14.). Hinn kristni þekkir aðeins eitt blóð, blóðið hans, sem gaf sitt líf fyrir bæði Gyðing og heiðingja, þræl og frjálsan. En er þetta svo? Eða hefur Gandhi rjett fyrir sjer, er hann segir, að kristnu söfnuðirnir hafi einmitt sitt »óhræranlega«? Upp á spurninguna,: »Hver er náungi minn?« svaraði Jesús með annari spurningu: »Hver var náungi þess, er fjell í hendur ræn- ingjanna?« Veröldin er 1 dag full af allskonar »útlög- um«, sem gjórðir hafa verið útlagar vegna kynstofns síns, trúar eða skoðana. Og það má á, margan hátt »ga,nga framhjá«, þegar aðrir eru í nauðum. Hver af oss hefur aldrei gjört það? — Hve margir af oss hafa tekið á sig þann kostnað að »reynast« náungar þeirrai, sem ctóðu öðru megin girðingarinnar í stjettabaráttu, kynþáttastreitu eða stjórn- máladeilum. Hjá hve mörgum hefur vort kristilega bróðerni verið þyngst á metunum. Látum oss biðja um það, að allir slíkir hleypidómar, sem sett ha,fa blett á hina kristilegu kirkju, megi verða afskafnir, svo að hin spámannlegu orð Páls megi verða raun- veruleg, svo að heimurinn megi kcmast til trúarinnar. Og látum oss fyrst og fremst biðja, að í vorum eigin fjelcgum út um heim allan megi sameining vor »í honum«, verða æ meir virk - leg og sönn. B æ n: »ö, Guð, þú s,em hefur gefið css náð til að bera sverð friðarríkis þíns,; þú sem hefur sent oss' sem boðbera friðarins um ófriðarsvæði heims'ns, og boðbera ófriðarins, þar sem rík- ir falskur triður: Styrktu hendur vorar, skerptu rödd vora, gefðu oss auðmýkt og myndugleika, og skilning í áhuganum, að vjer megum berjast, ekki til að undiroka, heldur til að frelsa«. (G. Vlastos). Fyrirbæn: Europa: Norður- cg Vestur. LAUGARDAGUR 19. NÖV. Drottinn, hvað viltu að vjer gjörum ? Postulas. 9, 6. Spyrjum vjer þessa, í alvöru? Þorum vjer í raun og' veru að reiða oss á Guðs orð og erum vjer reiðubúnir að hlýða, hvaða svar sem vjer fáum? Margir ungir menn hafa, lagt. líf sitt unci-' ir það málefni, sem þeir trúðu á. Vjer skulum hugleiða þau orð, sem ungur svertingi, heiðinn, sagði, þegar honum hjer um árið var boðinn kostur á að komast, hjá dauðadómi: Dauðinn er ekki stærsta óham- ingja, sem fyrir mann getur komið. Heldur hitt, að lifa í næði og óhultleika, með því að loka munninum, er menn horfa upp á rang'- læti og kúgun. Eigum vjer að takai þátt, í barát.tu Guðs móti allskonar ranglæti og' missa ef til vill með því vinsældir vorar, eða eigum vjer að lifa í »næði og óhultleik«?

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.