Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1938, Blaðsíða 10

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1938, Blaðsíða 10
32 MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. menningu fjelagsmanna, því að hann hefur alltaf haft svo næmt auga fyrir allri mennt- un í beztu og víðustu merkingu. Betri og tryggari vinur fjelagsins og margra með'ima þess er vandfundirn. Svo hefur það reynzt mjer frá upphafi viðkynningar okkar. Allir fjelagsmenn óska horium til hamingju og mikillar blessunar á þessum nýja áratug, sem hann er nú genginn inn í. Fr. Friðriksson. Gefðu. Þetta er orð ,sem þú hefir ef t:l vill oft heyrt. Því hefir verið beint til annara,, og til þín líka. Það hefir verið innileg áskorun um hjálp, um ofurlítið fram’ag til stuðnings einu eða öðru góðu málefni. Hvernig hefir þú farið að? Hefir þú reynt að sýna skilning þinn? Eða hefir þú vísað þvi frá þjer og .svarað snúðugt að þú sinntir ekki neinum sníkjum? Sje því þannig varið með þ:g, þá get jeg ekki nógsamlega lýst því hve bágt þú átt. Þá hefir þú ekki fengið að reyna mikilleik og blessun gjafmildinnar nje gleði gjafar- ans. Það er vandi að gefa. Einn var sá er kunni það og hann vildi líka kenna það cðr- um. Það var Jesús Kristur. Enginn hefir kunnað að gefa eins og hann. fíann gaf sjáif- an sig og þar með hinn alltumlykjandi kær- leiku sinn, kærleika, sem bræiddi hjörtun hörðu. Fórnin var mikil cg þess vegna var hún ekki færð baráttulaust. En kærleikur- inn skein í gegn, gjöfin var kærleikur. Gefið og yður mun gefast. En lát gjöfina vera fórn! Anna,rs er hjartað ekki með í henni. Kærleikanum einum fylgir blessun. Sá, sem gefur af gnæg(,um sínum til þess að hljóta loístír manna, hefir ekki 1 rt list na þá að gefa, sem hefir í sjer fóigna, fórn og sjált'safneitun, Sumarstarfið. Sumarstarfið í sumar var rekið með svip- uðu fyrirkomulagi og undanfarin sumur. I fyrra höfðum vjer, sem kunnugt er ekki fengið að nota stað vorn í Vatraskögi, en orð- ið að nemai land ofar í Svínadalnum, í Iíorna- hlíðum. Sá staður gat ekki fullkomlega full- nægt þeim, sem höfðu vanist skóginum, þótt þeir, sem ckki þekktu betra væru hrifnir. Það var því, þegar vora tók, mikil eftirvænt,- ing í mönnum hvort vjer fengjum vorn gamla, kæra stað aftur, og svo fór. 1 sumar var aðsókn að sumarstarfinu meii'i en nokkru sinni áður. Fimm heilir flokkar dvöldu upp l'rá, auk nokkurrai manna, sem dvöldu þar milli tveggj-a, síðustu flokkanna. Alls dvöldu þar í sumar 143 drengir og pilt- ar, en ef talin er með þátttaka, sem var í fleirum en einum flokki, voru samta’s 202. Til samanburöar má geta þess aö í fyrra voru drengirnir 97 en talið með þeim, sem voru í fleirum en einum flokki, 125 cg var það þó góð aðsókn. Fyrsti flokkurinn, sem upp eftir fór, var frá Akranesi. Hann fór f 'stud. J. júlí. 1 hon- um voru 24 og þar af tveir foringjar úr Reykjavík auk sjera Friðriks. Auk þess voru 3 eldastúlkur frá Akraneei. Sá flokkur fjekk engan sólarlausan dag. 7. júlí urðu flokkaskipti cg fyrsiti Reykja- Þegar þú gefur, þá lát ekki blása í lúðúr fyrir því, til þess að vekja eftirtekt! Lát vinstri höndina ekki vita h\ að hin hægri gjörir. Þá, munt þú cðlast gleði gjafarans. Það miskunnarverk, sem framkvæmt er í kyrrþey, gefur mesta innri án x gju og gleði. Sælir eru miskunnsamir, því þeim mun miskunnað verða. Uno KvisU

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.