Tákn tímanna - 15.10.1918, Síða 8
8
TÁKN TÍMANNA
í?--------------------------------------
Tiiliii Tíiuaima,
málgagn S. D. Aðventista, kemur út einu
sinni í mánuði. Kostar kr. 1,75 árgang-
urinn. Gjalddagi 15. okt. og fyrirfram.
Útg.: Trúboðsstarf S. D. Aðventista.
Ritstjóri: 0. J. Ulsen.
Sími 498. Pósthólf 262.
Afgreiðslum.: G. G. Hjartarson.
Sími 498. Óðinsgötu 21.
VS - -........................ y
500 kr. og föt kosta frá 1000 kr. upp í
2000 kr. Dagkaupið hjá vinnulýðnum
er frá 25—30 kr.
Færeyjum.
Starfið gengur áfram meðal frænda
vorra þar. Nýr söfnuður myndaður í
Trangisvaag á Suðureyju, skrifar E.
Chrisliansen, starfsmaður okkar þar.
Framför.
Upplagið af »extranúmeri« einu af
hlaðinu »Signs of the Times« (Tákn
Tímanna), eitt af blöðum voruin í Banda-
ríkjunum, var svo slórt nú fyrir skemslu,
að það fylti tólf járnbrautarvagna. í*eg-
ar C. W. White byrjaði að gefa blaðið
út 1874, gat hann farið með upplagið
alt á lijólbörum til pósthússins. Lagleg
liækkun á rúmum 40 árum.
Handleiðsla Drottins,
Bóksölumaður segir frá:
Einu sinni, meðan eg var í bóksöl-
unni, reyndi eg að komast að húsi einu
beina leið, því lengra var að ganga veg-
inn heim að því, þar eð hann lá af að-
alveginum úr annari átt en þar sem eg
var staddur. Fór eg því yfir nýsleginn
akur, yfir garðinn hjá fjósinu, fram hjá
brunninum og kringum liúsið til for-
stofunnar. Húsfrúin kom fram og bauð
mér inn. Hún heyrði illa og varð þess
vegna að skreppa frá mér snöggvast að
sækja eyrnapípu sina. Þegar hún kom
aftur byrjaði eg að lýsa fyrir henni
»Daníels- og Opinberunarbókinni«, en
komst ekki langt fyr en hún sagði, að
óþarfi væri að lýsa meiru af innihald-
inu; hún ællaði að fá eina. Þegar eg
hafði lálið sýnishornið í vasann aftur,
segir hún við mig: »Langt er siðan eg
óskaði eftir að geta skilið spádóma þess-
ara bóka og síðasta sunnudag þegar eg
hafði lesið kafla í biblíunni minni, bað
eg Guð innilega um nýtt Ijós þessum
spádómum viðvíkjandi, og um nóttina
dreymdi mig draum, eg þóltist sjá ung-
an mann koma yfir akurinn og fram-
hjá fjósinu eins og þér gerðuð í dag,
og í nótt dreymdi mig sama aftur, og
eg þekki yðar andlit að vera sama og
eg sá í draumnuin. Eg er því sann-
færð um, að þér eruð sendir af Drotni,
og eins um, að eg hef fengið bænheyrslu«.
— Vér töluðuin margt annað saman, en
síðan hef eg frétt, að hún hefur tekið
stefnu með sannleikanum.
W. W. E.
Frá Bandaríkjunum,
Fyrir nokkru var haldin alþjóða-ráð-
stefna aðventista í aðalsamkomusal bæj-
arins San Fransísko í Bandaríkjunum.
Voru þar fulltrúar frá rétt öllum lönd-
um, sem nöfn hafa á landabréfinu, fæst-
ir þó frá Norðurálfunni vegna stríðsins.
Starfssvæðum skifl þannig, að einn
maður íær yfireflirlit í Kína og Japan.
Annar í Indlandi, á Eyálfunni og eyj-
unum í Kyrrahafinu. Sá þriðji í Suður-
Afríku. Sá fjórði í Norðurálfu. Sá fimti
i Suður-Ameríku. Og sá sjötti í Norður-
Ameríku. í álfunum eru aftur margar
deildir og undirdeildir, sem liver hefur
sinn formann.
Prentsm. Gutcnberg.