Tákn tímanna - 15.04.1919, Page 7

Tákn tímanna - 15.04.1919, Page 7
TÁKN TÍMANNA 55 Móði r mín dó, þegar eg fæddisl. Faðir minn giftisl aftur, en dó fimm árum síðar, og liefi eg sjálf orðið að sjá í'yrir mér alt frá þeirri stundu«. »Og nú ertu bara íimtán ára ?« »Já, frú«. »Hvernig fékstu nóga peninga til þess að geta borgað fyrir heilt ár hér á skól- anum ?« »>Ég hefi sjálf innunnið mér það, hvern einasta eyrir. Þegar eg var orð- in nógu gömul, fór eg að vinna í verk- smiðju og fekk þar 6 krónur á viku í byrjunarlaun, síðar fekk eg 10 krónur; en á kvöldin og morgnana vann eg fyrir fæði mínu«. »Vesalings barn !« »Segið ekki það, frú, mér þótti mjög gaman að gera það«. »En hvernig hefir þú þá getað læit eins mikið og þú hefur gert?« »Eg var vön að leggja opna bók á vefstólinn minn, svoleiðis, að eg af og til gat gripið eina og eina setningu; verkstjórinn fann ekkert að því, vegna þess, að eg var ætíð vön að leysa vinnu mína vel af hendi. Eg skal segja yður, að eg hefi sterka löngun til að verða kenslukona; og eg áleit, að hér væri besta tækifærið til að menta sig; þess végna er eg bingað komin«. »Hvað heíirðu hugsað þér að gera í suinarfríinu ?« »Eg verð að fara aflur til verksmiðj- unnar og vinna inér eitthvað inn, svo eg geti fengið mér hlýrri föt til vetrar- ins. Nú sjáið þér, frú, livers vegna eg liefi ekki haft efni á því að klæðast betur en eg heíi gert«. Forstöðukonan komst við. Hún laut niður að hvíta, magra andlitinu og kysti ]iað með lotningu. Pegar allar stúlkurnar voru komnar saman til kvöldlesturs í samkomusaln- um, sagði forstöðukonan frá sögu Fanny- ar. Enginn í salnum gal lára bundist. Þegar hún hafði lokið móli sínu, stóð Berta Brandt upp og sagði grátandi: »Ó, frú, við höfum verið voðalega harð- úðugar og vondar við þessa vesalings stúlku. Frá því hún fyrst kom hingað höfum við skopast að henni; og ef við hefðurn ekki kvalið hana eins og við gerðum, mundi hún ekki hafa orðið svona veik. Það var eg, sem kom hin- um stúlkunum til þess ; og allan þenn- ati tíina höfum við verið svo kvíðafull- ar og óttast, að hún rnundir deyja. t*ér megið reka mig úr skólanum eða hegna mér á hvaða hátt sem yður þóknast, því eg á það skilið; og eg vil falla á hné og biðja hana um fyrirgefningu eins fljótt og þér viljið leyfa mér að koma inn til hennar«. »Það fær mjög á mig að heyra þetta, barnið mitt. Mér hefði aldrei getað dottið í hug, að nokkur hér í skólan- um gæti beitt annan félaga sinn ofbeldi, þótl hann væri fátækur og miður vel búinn. En þú hefir játað þetta hrein- skilnislega, og eg fyrirgef þér eins fús- lega og eg held að hún muni gera, þeg- ar hún fær að vita, hve einlæglega þú hefir iðrast þess«. Jafnóðum og Fanny var fær um að taka á móti stúlkunum, komu þær inn til hennar og báðu hana um fyrirgefningu, og það gerði hún fús- lega. Hún sagði: »Eg furða mig ekki á því, að þið gerðuð gys að mér. Eg veit að eg var illa klædd og er afar- ófríð. Eg mundi hafa slitið hvert ein- asta hár af höfði mér fyrir löngu, ef eg heíði ekki vitað að það rnundi vaxa aftur eins rautt og það áður var. En ó, ef eg liefði getað fundið, að eg átti bara eina vinstúlku á meðal yðar, þá

x

Tákn tímanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.