Tákn tímanna - 15.04.1919, Blaðsíða 8

Tákn tímanna - 15.04.1919, Blaðsíða 8
56 TÁKN TÍMANNA fr ' ~~------------------- -----------^ Tíilíii Tímanna, málgagn S. 1). Aðventista, kemur út einu sinni i mánuði. Kostar kr. 1,75 árgang- urinn. Gjalddagi 15. okt. og fyrirfram. Utg.: Trúboðsstarf S. D. Aðventista. Rilstjóri: 0. J. Olsen. Sími 498. Pósthólf 262. Afgreiðslum.: G. G. Hjartarson. Sími 498. Óðinsgötu 21. -................ JJ hefði eg gelað borið það; en það sund- urkramdi hjarta mitt, að þið snerust allar saman á móti mér«. Eftir þetta fór henni dagbatnandi, og það kom að því, að læknirinn leyfði henni að koma saman með hinum stúlk- unum í salnum einni stundu fyrir kvöld- verð Síðustu dagana hafði verið mik- ið hljóðskraf og miklar annir á meðal stúlknanna, en Fanny grunaði ekkert, því hún var all af á herbergi sínu. Á tilleknum tíma kom forstöðukonan sjálf inn til þess að hjálpa henni. Hún leiddi Fanny gætilega í gegnum gangana. »Kæra barnið mitt«, sagði forstöðukon- an, »stúlkurnar hafa búið þér óvænta gleði til þess að gera þelta tækifæri eins ánægjulegt og hægt er«. Frh. Fyrirg’efning negrans. Gamall negri kom einu sinni til trú- boða nokkurs og bað hann um að kenna sér að biðja. Trúboðinn byrjaði á því að kenna honum Faðirvorið, og útskýrði fyrir honum hverja einstaka bæn í því. Þegar þeir voru komnir að íimtu bæninni: »Fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vor- um skuldunautum«, varð gamli negrinn órólegur og hrópaði : »Hvað á það að þýða ?« »Það, að Guð gelur ekki fyrir- gelið oss skuldir vorar, þegar vér ekki viljurn fyrirgefa náunga voruin það, sem hann hefir gert oss á móti«, svaraði trúboðinn. »Þá getunr við eins vel liætl undir eins, því það get eg ekki«, svar- aði negrinn og fór á dyr. Langur tími var liðinn, og trúboðinn liafði nær því gleynrt þessum litla al- burði; en eiun fagran dag kom gamli negrinn aftur og sagði: »Jæja þá, nú getum við haldið áfram ! Eg hefr fyrir- gelið honurn! Húsbóndi minn lét einu sinni berja mig íiniin hundruð svipu- högg, og lét mig svo liggja nær dauða en lífi. Þegar eg síðar var orðinn frjáls maður, mætti eg honum einu sinni á götunni, og það var eins og hver blóð- dropi í mér ólgaði. Eg gat tæplega þolað að sjá hann. En í gær mælti eg honum aftur og gat þá talað vingjarnlega við hann. Þessvegna geluin við nú haldið áfram«. Negrinn hafði skilið, að liatrið verður að rýtna fyrir kærleikanum, en það er að eins hægt fyrir kraft Guðs. Skipið ferst ekki, þótt það fljóli á vatninu og sé umkringt af því, en þég- ar vatnið flýtur inn í það, þá ferst það. Fannig er það með hinn kristua mann. Hann ferst ekki af því, að komast út í lieiminn, lieldur þegar heimurinn kemst inn í hann. Heinmrinn tekur svo litlum framför- um í siðgæðum, af því menn vilja ofl- ast byrja á því að endurbæta aðra, en ekki sjálfa sig. Prentsm. Gutenberg.

x

Tákn tímanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.