Tákn tímanna - 15.06.1919, Síða 7

Tákn tímanna - 15.06.1919, Síða 7
TÁKN TÍMANNA 71 var á leiðinni til samkomu, og lét hann setjast npp í vagninn hjá sér. »Eg er glaður yíir að fá að keyra«, sagði Lorentz, »því eg er búinn að gat- ganga annan skóinn minn«. t’egar þeir höfðu keyrt spottakorn, slakk faðir minn upp á því, að hatin léti gera við skóinn sinn. »í litla rauða lnísinu þarna, býr maður sem bætir skó. Hann er fátækur og haltur, upp- stökkur og ólundarfullur, en duglegur verkamaður«. »t*að er einmitl rétti staðurinn handa mér«, sagði Lorentz, um leið og hann stökk af vagninum og gekk inn í vinnu- stofuna. Hann settist niður fyrir framan eldinn, leysti skóinn af sér og rétti skó- smiðnum. Hann virti gatið fyrir sér og fór að blóta. »Eg er hræddur um, að þér séuð ekki kristinn«, sagði Lorentz með hægð. »Það eru engir kristnir menn til!« hreytli skósmiðurinn úr sér. »t*að eru nógu margir, sem þykjast vera það« — svo fór hann að tjarga þráðinn sinn og loga í hann eins og til þess að leggja áherslu á orð sín. »t*að er svo kalt hér á vinnuslofunni yðar, að bikið er of harl; á eg ekki að leggja svolítið meira brenni á eldinn?« »Eg vinn til þess að halda mér heit- um«, svaraði skósmiðurinn stuttlega. »Eg heíl ekkert nema óhöggvin við, af þvi enginn getur höggvið hann fyrir mig, sjálfur gel eg ómögulega gert það, vegna lialla fótsins*. »Lorentz fór úr langa frakkanum sin- um, tók skó einn, sem lá þar hjá, fór svo úl í viðarskúrinn, fann þar öxi og fór að höggva. Áður en skórinn var til- búinn, var hann búinn að höggva og bera inn allan viðinn, sem til var í skúrnum, hafði hlaðið honum fallega í eilt hornið og glætt eldinn svo að nú skíðlogaði á arninum. »Þegar skórinn var búinn fór liann í hann, borgaði fyrir vinnuna og sagði um leið og hann fór í frakkann: »Kær- ar þakkir, vinur minn, þér hafin sýnt yður sem »verkamann, er ekki þarf að skammast sín«. í þelta skifli svaraði skósmiðurinn kurteislega: »Eg er yður mjög þakklátur. t*að er samt sem áður ekki ólíklegt, að fáeinir kristnir menn séu til í heiminum — og þér eruð einn af þeim«. »Eg leilast við að vera það. Verið þér sælir!« Lorentz fór og skildi skósmiðinn ein- an eftir, sem undrandi sagði við sjálf- an sig: »Já—já; ef hann leilast við að vera kristinn, þá er kristindómur hans ekki innifaiinn í orðum einum, þvi hann prédikaði ekki svo mikið sem eitt ein- asla orð fyrir mér«. Lorentz, sem oft hafði það fyrir vana, að velja lexta sinn á leiðinni, þangað sem hann ætlaði að prédika, lagði þella kvöld út af þeim orðum, sem honum duttu í hug hjá skósmiðnum. »Legg kapp á að sýna sjálfan þig fullreyndan fyrir Guði, verkamann, er ekki þarf að skammast sín«. 2. Tím. 2. 15. Það voru fjölda margir áheyrendur, og hann pré- dikaði um, hvernig maður ælli að Iifa eftir trú sinni, og á sinn frumlega liált benti hann á þann sannleika, að al- staðar eru til fátækar og ógæfusamar manneskjur, sem þeim krislnu er skylt að líta eftir, og það starf þarf að ger- ast, ef vér eigum að geta búist við að heimurinn trúi á vorn kristindóm. Lorentz var hjá okkur um nóttina, og um morguninn eftir keyrði faðir

x

Tákn tímanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.