Tákn tímanna - 15.08.1919, Blaðsíða 2

Tákn tímanna - 15.08.1919, Blaðsíða 2
82 tAkn tímanna uga ? Ungi vinur minn, hvað er þins eðlis? Hvar átt þú bezt heima, og hvað hefir mest aðlaðandi áhrif á þig? Er »fýsn holdsins, fýsn augnanna og hvers- kyns stærilæti«, umhverfi það, sem þú helzt vilt og getur hreyft þig í ? Elskar þú heiminn, og þá liluti, sem eru af og í heiminum? Eða ertu einn af þeim hamingjusömu, sem leita fyrst og fremst guðs ríkis og hans réttlætis? Er vilji hans þín löngun og gleði, eða er það annað, sem er þér meira virðir Berst þú karlmannlega gegn hinu illa, sem er í hjarta þínu, og vinnur þú sigur dag- lega fyrir kraft og aðstoð Guðs? Bessar og þvílíkar spurningar hefir þú ef til vill lieyrt oft og tíðum. Ef til vill hafa þar stökusinnum gjört vart við sig í hjarta þínu. En hefir þú gefið til hlýtar gaum að viðtæki þeirra, og mik- ilvægi þeirra fyrir þig einstakan? Þín jarðneska velferð, þitt eilífa hlutskifti er komið undir svari því, er þú getur gefið við spurningum þessum. Þú getur lirundið þeim frá þér í dag og á morg- un, þennan mánuð út, þetta ár, já, alt þitt líf; en þú munt mæta þeim aftur, já og enn þá dýpri spurningum, þótt ekki verði fyr en á þeim degi, er þú skalt gjöra grein fyrir Hfi þínu. Van- ræklu ekki að hugleiða þelta áður en það verður of seint! Ef þú elskar það sem guðs ríkis er, svo elskar þú það, sem er varanlegt; en elskir þú heiminn, svo reiðir þú þig á það, sem hlýtur að fyrirfarast; því »heimurinn fyrirferst og fýsn hansrr. Og þegar hann ferst, þá híjóta þeir, sem hjörtun hafa tengd við lieiminn, að líða undir lok ásamt honum. Að eins sá, »sem gjörir tíuðs vilja, varir að eilífucc. Pvílíkur hefir lífið, hið eilífa, og mun, ef hann verður staðfastur við hið góða, verða íklæddur óforgengileika á hinum mikla degi. Þegar alt þetta jarðneska líður undir lok, sundurleysist og hverfur, munu að eins þeir, »sem gjöra guðs vilja«, stand- ast. Þess vegna megum við ekki láta neitt jarðneskt ginna oss út á spilling- arinnar og glötunarinnar braut. Minn- umst þess, að fýsn holdsins og augn- anna — alt, sem lokkar og freistar hins náttúrlega hjarta — er hverfult og fall- valt. Það, sem í dag talar svo tælandi og er svo freistandi, getur á morgun borið vott um hverfulleik sinn. Það, sem nú virðist svo dýrðlegt og mikil- vægt, mun innan skamms rykast upp, verða að engu og hverfa. Er því ekki þannig varið? Gef bara ofurlítinn gaum að veldi þvi og mikilleik þeim, sem heimurinn stundum hefir leitt í ljós! Hvar eru nú þeir, sem áður höfðu því- líkt vald, að það virtist ósveigjanlegt, og sem fengu þjóðirnar til að skjálfa fyrir orðum sínum ? Hve mikil gæfa og gleði hlotnaðist þeim af sinni óseðjandi og vægðarlausu eftirsókn eftir veldi og virðingu? Hvernig reiddi þeim af, sem náðu marki því, að geta veitt sér alt, sem augun og holdið heimta ? Hve löng varð æfi þeirra? Hvað varð af öllu því prjáli og skarti, er þeir hlóðu að sér? Sannarlega er það satt, að »heimur- inn fyrirferst og fýsn hans«! Sá er þess vegna hygginn, sem gefur gaum að upp- hvatning postulans, um að elska ekki lieiminn, og hluli þá, sem í honum eru. Á meðan heimurinn er í hjörtum vor- um, tilheyrum við honum. Ef við vilj- um höndla hið eilífa Hfið, verðum við að skilja við hann í tæka tíð. »Því alt hold er sem gras og yndisleikur þess

x

Tákn tímanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.